Dagur #12
Þetta eru einu sjáanlegu skemmdirnar á hjólinu. |
Eftir ágætis byrjun á deginum í gær fóru aðeins að síga á mig verkir seinnipartinn. Mér fannst ég orðinn svolíltið heitur og rauður í kringum skurðinn í gærkvöldi og hafði smá áhyggjur af sýkingu. En ég át verkjalyf áður en ég fór að sofa og svaf ágætlega til klukkan 5. Þá vaknaði ég, fór á klósettið og tók aftur verkjalyf. Ég steinsofnaði og svaf svo til klukkan níu. Mér finnst ég svo vera betri núna upp á morguninn.
Þorvaldur kom í gærkvöldi og við sátum til klukkan 1 að kjafta. Við vöknuðum svo í morgun og tókum gott spjall yfir kaffibolla. Þolli er núna farinn út að hlaupa. Við fundum GPX file af 20 km fjallahlaupi frá Halldóri Arinbjarnar sem hann hlóð niður í úrið sitt. Þegar hann kemur heim röltum við svo út í búð og fáum okkur eitthvað að borða.
Harpa er en inniliggjandi á sjúkrahúsinu og á að fara í myndatöku upp úr hádegi. Henni líður mun betur en er alveg skelfilega dópuð af einhverjum djöfullegum lyfjakokteil. Ég ætla að fara í heimsókn til hennar seinnipartinn. Við Þolli stefnum svo að því að kíkja upp í Mývatnssveit í kvöld eða á morgun.
Ég sótti hjólið í geymsluna til Hörpu í gær og renndi aðeins yfir það. Ég tók greinilega á mig allt fallið og hef verið með hjólið fast á milli lappana þegar ég tók byltuna. Það eina sem er laskað er bremsan/gírskiptingin og svo þarf að skipta um teip á stýrinu. Ég ætti að geta fengið þetta úr tryggingum.
Ummæli