Fjallið⛰

Threshold og kannski pínuVO2max?

Lactate threshold intervals (mjólkursýruþröskulds-æfingar) eru skv. Trainingpeaks (TP) 91-105% af FTP. Lýsing á æfingunum er:

Effort sufficiently high that sustained exercise at this level is mentally very taxing – therefore typically performed in training as multiple ‘repeats’, ‘modules’, or ‘blocks’ of 10-30 min duration. Consecutive days of training at level 4 possible, but such workouts generally only performed when sufficiently rested/recovered from prior training so as to be able to maintain intensity.
En til að gera þessar æfingar rétt, þá þarf maður að vera með rétt FTP gildi (Functional Threshold Power) og það sama á við um hjartsláttar zone-in. Flestir ef ekki allir hjólarar upplifa það að skila hærri vöttum úti miðað við inni. Ein ástæða þess er að þá er ekki hjólið fast og maður á auðveldara með velta því til hliðanna og nota líkamann. Eftir að ég fór að hjóla úti fann ég strax að ég var að skila mun meiri vöttum og hækkaði FTP gildið mitt handvirkt í TP (hóflega þó) svo æfingarnar væru nógu krefjandi. Síðan er ég bara að skoða gögnin og gera þetta eftir tilfinningu.

Í gær átti ég að taka 2x20mín threshold æfingu og þá finnst mér alltaf best að fara í fjallið. Áður en ég byrjaði að fara eftir einhverju prógrammi þá var ég reyndar frekar duglegur að hjóla þarna uppeftir þegar þannig lá á mér. Mér finnst einfaldlega skemmtilegt að hjóla í brekkum og útsýnið ofan úr fjalli er ekki að skemma fyrir. Helsi gallinn við þetta er að maður nær náttúrulega ekkert að hjóla á milli heldur verður bara að láta sig rúlla niður. Ég sé það á Strava að ég er búinn að hjóla 41x þarna uppeftir.


Í gær var ég orðinn tæpur á tíma og var bara í stuði til að drífa þetta af. Ég ákvað að vera ekki of upptekinn af vöttunum, heldur bara reyna að hafa þetta þokkalega krefjandi. Ég ákvað að standa og sitja til skiptist í fyrri ferðinni en sitja svo alveg í þeirri seinni.

Ég fór heldur skarpt af stað í fyrri eins og sést og púlsinn fór fljótlega yfir 160 og var þannig alla leiðina upp. Þetta var það krefjandi að ég sá ekki alveg fyrir mér að ég væri að fara aðra ferð en ég var ótrúlega fljótur að jafna mig, rúllaði niðureftir aftur og byrjaði strax á ferð 2.

Í seinni ferðinni sat ég bara og hélt lægsta gír alla leiðina upp. Það var alveg erfitt en ég hefði s.s. alveg getað böðlast eitthvað áfram. 

Ferð 1
Tími: 17:53.64
Hækkun: 342 m
IF: 1.10
VI 1.02
Cadence: 66
NP: 274
W/kg: 4,23
AV HR: 160

Ferð 2
Tími: 18:57.39
Hækkun: 342 m
IF: 1.00
VI 1.01
Cadence: 70
NP: 250
W/kg: 3,88
AV HR: 156

Næst ætla ég að taka 3x20 mínútur og þá ætla ég bara að vera í kringum 250 vöttin þannig ég sé ekki að leka yfir í meiri ákefð- hafa þetta bara hreinræktaða þröskuldsæfingu. Annars færi að verða rosalega gagnlegt fyrir mig að spjalla við einhvern þjálfara og bera undir hann gögnin mín. Þar sem ég hef aldrei fari í neinar alvöru mælingar, þá eru flest gildi sem tengjast hjartsláttarsónum frekar vafasöm. Það væri gott að fara að fá fersk augu og sjá hvort maður gæti gert einfaldar breytingar sem jafnvel gætu skilað góðum árangri.

Að lokum, fyrri ferðin í mín gær var 2. besti tíminn minn þarna uppeftir og ef ég hefði bara verið að fara eina ferð þá hefði ég eflaust náð að bæta hann eitthvað. Ég þarf einhverntíman að finna mér tíma til að fara all-out þarna uppeftir og sjá hvort ég geti nálgast markmiðið sem ég setti mér fyrir sumarið þó ég sjái að það hafi nú verið sett í frekar mikilli bjartsýni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap