Bikarmót #2 - Uppgjör
Frá Cannondale bikarmótinu í Grindavík. Mynd Ragnar F Valsson (RFV-photos). |
Þá er annað mót ársins búið og óhætt að segja að innkoma mín í heim keppnishjólreiða sé aðeins erfiðari en ég hafði séð fyrir mér. Brautin í gær átti að henta mér ágætlega en röð mistaka á fyrstu 5,5 km kostaði það að ég missti af hópnum og átti aldrei séns eftir það.
Suðurstrandarvegur- leiðin sem B-flokkur karla fór. |
Ræsing var í Grindavík og hjólað að snúningspunkti 5 km austan við leiðina upp að Kleifarvatni. Farið upp að Kleifarvatni að snúningspunkti og til baka aftur, samtals 88 km. Það var stífur vindur úr aust- suð austri og ca. 10°C. Hálfskýjað.
Hæðarkort af brautinni, Festarfjall er fyrsta alvöru hækkunin. |
Ég þarf s.s. ekkert að fjölyrða um þetta, en fyrstu mistökin voru að ég kom mér fyrir hægra megin í hópnum í byrjun sem var mjög heimskulegt út af vindinum. Hópurinn var svo þéttur að ég ákvað að reyna að síga aftur úr honum og ætlaði svo að vinna mig upp aftur vinstramegin. Þetta voru dýr og heimskuleg mistök. Það var bannað að fara yfir miðlínu og þegar ég var kominn aftastur átti ég ekki séns á að koma mér upp.
Eftir 5 km kom fyrsta alvöru brekkan (Festarfjall) og þar var ég bara í góðum málum. Út af miðlínunni hafði ég hinsvegar ekkert pláss til að koma mér áfram í hópnum og var fastur aftast. Ég hefði getað keyrt upp þessa brekku mun hraðar. Þegar við vorum að verða komnir á toppinn, þá rykkti hópurinn og ég missti næstu menn aðeins fram úr mér. Það var hífandi vindur þarna uppi og á leiðinni niður var ég í stökustu vandræðum með að halda mér á hjólinu. Ég hélt rúmlega 300 vöttum í smá stund en á endanum þorði ég hvorki að fara hraðar né eyða meiri orku í bili. Ég þurfti því að taka þá erfiðu ákvörðun að hægja og vona að hópurinn slitnaði eða að ég myndi á endanum ná einhverjum. Ég skal alveg viðurkenna að þegar ég sá hópinn síga framúr, þá hvarlaði að mér að hætta þessu bara.
Gögnin úr Traininpeaks. |
Næsta klukkutímann datt ég niður í tempo og hélt 211w og var með hjartsláttinn í 145 að meðaltali. Ég gerði þetta bara eftir tilfinningu og reyndi bara að passa mig á að klára mig ekki alveg. Ég hef ekki það mikla reynslu og veit í rauninni ekki hvað ég get farið djúpt, sérstaklega ekki þar sem langt var eftir og mikið af brekkum. Ég vissi alltaf að hópurinn næði aldrei að hanga saman allan tímann en það þarf ekki marga kílómetra til að gera þetta vonlaust mál. Þeir sem detta úr honum eftir nokkra kílómetra eru komnir með það mikið forskot að erfitt er að ná þeim. En ég ákvað að gera bara mitt besta og mantran sem ég sönglaði í hausnum var "aldrei gefast upp".
Frá Kleifarvatni kvöldið fyrir mót. |
Þó útlitið væri svart þá naut ég þess samt að hjóla við Kleifarvatn. Þar var mikið af fólki á ferðinni og brautin ótrúlega skemmtileg. Endalausar beygjur og litlar brekkur. Þar var hópurinn líka farinn að splittast upp og það gaf mér smá kraft. Ég hjólaði uppi einhverja gaura sem voru ræstir út með okkur en þeir voru ekki í mínum flokki. En þrátt fyrir mikið strit þá náði ég ekki öftustu mönnum í mínum hópi og kom í mark 4-8 mínútum á eftir þremur seinustu mönnum. Þannig fór um sjóferð þá.
Harpa beið við marklínuna, sem var yndislegt☺️ Hún náttúrlega vann sinn flokk- enda mesti naglinn. |
Tölfræðin:
Duration: 3:00:18
Distance:87,5 km
Average speed: 29,1 km/klst
Calories: 2238
Elevation gain: 879
TSS: 233
IF:0.88
Noramlized Power: 220 w
Work: 2236 kJ
Samantekt:
Ég skal bara vera hreinskilinn með það að þetta var frekar erfitt fyrir egóið þó maður hafi reynt að bera sig vel. Allskonar efasemdir skjóta upp kollinum og manni finnst eins og maður eigi ekki alveg heima í þessum hópi. Það hvarlaði alveg að mér að skrá mig næst í C-flokk en ég ætla að leyfa mér að hafa bara trú á mér og negla á þetta aftur. Ég get betur.
Næsta mót er í Grundarfiðri og þar verður farinn 138 km hringur á Snæfellsnesi. Þar er ég bara með eitt markmið og það er að hanga í hópnum sem lengst. Ég var reyndar með það líka síðast..... en jæja.
Ummæli