Sólríki apríl

Hafragrautur með eggi og sýrópi er sleggja!

Síðustu ár höfum við hér á Akureyri yfirleitt fengið bongóblíðu í apríl. Þetta hefur nú ekki alltaf staðið lengi yfir en verið kærkominn sumarauki. Eitt árið í Dalsgerðinu man ég eftir að við lágum í sólbaði í 2-3 daga í röð og hitinn nálgaðist 20°C.

Í fyrra brast á með blíðu í apríl (man ekki fjölda daga) en svo var maí reyndar frekar hryssingslegur og kaldur. En sumarið var náttúrulega engu líkt og maður var fljótur að gleyma því. 

Hjólatúrinn í fyrradag kveikti aðeins í manni og maður er orðinn alveg gíraður í að komast meira út. Hitinn slefaði í 10°C og smá gola, ég bið ekki um meira. Það er því frekar þunglyndislegt að skoða spánna næstu vikuna (frost, hríð, slydda og vibbi). Ekkert útihjól í bili sýnist mér.

Veðrið í dag bauð ekki upp á að hjóla úti og ég kláraði því vikuna inni á trainer-num í gær. Ég hjólaði 100 km og það tók mig 2 klst og 52 mínútur. Ég var bara sprækur og þetta gekk vel, en ég verð að viðurkenna að ég fann aðeins fyrir þessu í gærkvöldi. Smá þreyta í fótunum og svo var ég bara syfjaður og þreyttur.

Vikuupgjörg úr Strava.


En vikan var góð í heildina þó ég hafi ekki náð upp í 11:45 klst eins og plön gerðu ráð fyrir. Það þýðir ekkert að svekkja sig á því, stundum er þetta bara svona. En sem fyrr segir er róleg vika framundan til að leyfa líkamanum að jafna sig á álaginu og vonandi bætir maður sig í kjölfarið. Ég er að spá í að taka test á miðvikudaginn og sjá hvort ég sé ekki á uppleið. Mér líður allavega eins og ég sé að ná mér eftir þessa lægð sem ég fór í fyrir covid.

Annars er stefnan að láta hendur standa fram úr ermum þessa vikuna þar sem lítið er um æfingar. Ég ætla að klára að umpotta, sortera dót og henda, þrífa og svo verð ég að fara að gefa mér tíma í að undirbúa hjólaferðina hjá mér og krökkunum.

Hjóladótið er komið frá Þýskalandi og ég ætti að geta náð í það á morgun í póstboxið mitt í Hrísalundi. Ég þarf að henda watta-pedölunum á og synca þá við hjólatölvuna. Og svo þarf ég að fara niður í Útisport og kaupa nýjan hjartsláttamæli og senda Wahoo-inn sem ég keypti í Kríu til baka- ég er búinn að gefast upp á honum. 

Eitt að lokum. Fyrir margt löngu sagði Þolli mér að prufa að hræra eggi út í hafragrautinn en mér fannst það hræðileg hugmynd og alls ekki hljóma vel. Eftir löngu æfinguna í gær lét ég vaða í þetta og verð að viðurkenna að þetta kom mér verulega á óvart. Át hann með hlynsýrópi og fékk mér feitt spínatbúst með fullt af berjum! 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap