Pre-race stress?

Harpa að máta hjólin á bílinn.

Ég var alveg punkteraður í dag og ákvað að sleppa æfingu. Ég var að skíta á mig bara við að hjóla niður í bæ til að kaupa mér hádegismat og svo úr vinnunni og heim. Ég er þreyttari í löppunum en ég bjóst við og sennilega bara gáfulegast að hvíla 2 daga fyrir mótið. Sumir vilja alltaf taka smá "openers" síðustu 2 dagana fyrir mót en það hentar mér ágætlega að hvíla bara. Og eins og venjulega þegar ég er orðinn svona þreyttur þá ét ég alveg óhemju mikið. Ég læt það bara eftir mér og held að þetta sé bara líkaminn að láta vita að eitthvað vantar. Bara reyni að hemja mig í nammi og sukki.

Það er búið að vera mikið batterí að taka sig til og listinn af hjóladóti og matvælum sem ég fór með yfir til Hörpu í dag var langur. Ég fer í flug suður á eftir og verð að vinna þar á morgun. Harpa kemur svo og hittir mig seinnipartinn á morgun og við sækjum keppnisgögn og keyrum svo suður með sjó að skoða brautina.

Hringurinn sem ég tek 5x á laugardaginn.

Ég er búinn að vera drullu stressaður í dag og nú get ég ekki greint á milli hvort það sé út af vinnunni eða mótinu. Sennilega er það bara sitt lítið af hverju. Það er svolítið erfitt fyrir mig að setja upp eitthvað plan fyrir þetta mót enda hef ég litla reynslu og er bara að fara að keppa við gaura sem ég þekki ekki neitt. Eftir að hafa skoðað suma þeirra á Strava, þá veit ég að þeir eru að öllum líkindum öflugri en ég.

En planið sem ég er að hugsa um er ca. svona:
  • Ég ætla að klæða mig vel því ég finn hvað ég er mikið slappari þegar það er kalt og líkaminn að berjast við að halda á sér hita.
  • Ég ætla að éta vel fyrir mótið og ég ætla að éta meira á hjólinu en ég held að ég þurfi.
  • Ég ætla að reyna að koma mér í fremsta hóp sem fyrst og hanga þar eins og ég mögulega get. Að öllum líkindum slíta þeir sig frá mér á einhverjum tímapunkti en þá vonandi erum við búnir að slíta af okkur eitthvað af liði sem nær manni ekki aftur.
En svo er ég bara að reyna að muna að þetta er æfing hjá mér og ég held áfram að æfa fyrir Íslandsmótið sem er braut sem hentar mér miklu betur.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap