Góð helgi framundan....
Monton vetrarbuxur og Monton Skull base layer frá pedal.is. |
Jæja þá er þessi vika liðin og þá má kannski segja loksins. Ég lenti í frekar miklu stressi og nokkrum leiðindamálum í vinnunni. Fyrir tilfinningaaverur eins og mig, sem aldrei vilja gera flugu mein, fyrir einhvern sem tekur allt inn á sig, þá er það ekki alltaf auðvelt. En ég held að ég sé að færast nær því að geta lokað á þetta og gert skil á milli vinnu og einkalífs. Vera bara meira sama þó einhver sé ósáttur. Á meðan maður vinnur eftir bestu samvisku og reynir að gera sitt besta, þá er maður örugglega á réttri leið.
En í gær kom ég heim úr vinnunni algerlega búinn á því. Það var frídagur á hjólinu og ég fór bara eitthvað að stússast, versla og undirbúa kvöldmatinn. Ég var útúrtaugaður og það var ekki fyrr en ég var búinn að leggjast í bað fyrir kvöldmatinn sem þetta fór að líða úr mér. Harpa kom svo í mat til okkar og þetta endaði á að vera dásamlegt kvöld.
Dagurinn í dag í vinnunni var betri og eitthvað af þessum málum sem voru búin að angra mig leystust. Ég fer því bara bjartsýnn og brosandi inn í helgina. Eftir að ég tók æfinguna í dag nennti ég ekki að elda. Við fórum á Subway og átum svo og horfðum á fréttirnar. Nú sit ég uppi í rúmi og hripa þetta niður og Dagbjört Lóa er að slokkna við hliðina á mér.
En æfing dagsins var drullu erfið en gefur mér von um að ég sé á réttri leið. Ég var þreyttur þegar æfingin byrjaði en náði alltaf að klára settin og var bara fínn þegar ég var að klára. Löngu æfingarnar (sem sumir sleppa) eru klárlega að skila mér betra þoli og ég get því tekið vel á því en jafnað mig aftur og haldið áfram. Það skiptir máli.
Að lokum, þá kíkti ég til Hafdísar í pedal.is og náði mér í forláta hjólabuxur þar sem veðrið er að skána og maður fer að færa sig út. Ég og Harpa ætlum að hjóla saman í fyrramálið Eyjafjarðarhring og ég hlakka ekkert smá til. Græjurnar sem ég pantaði frá Þýskalandi koma í hús eftir helgi og nú er ég að verða fullbúinn fyrir fyrsta mótið. Markmiðin með bætt mataræði eru líka á réttri leið og ég er færast í átt að hæfilegri keppnisþyngd. Grænmeti, fiskur, kjúklingur, hrísgrjón, pasta, hummus, ávextir, lýsi, magnesíum, D-vítamín og tómatsafi...... þetta gerir allt sitt gagn.
Ummæli