Flækjustig og stress
Í nýjum símaklefa í vinnunni |
Ég er búinn að vera svo stressaður þessa vikuna að ég veit varla hvort ég er að koma eða fara. Í vinnunni þeytist ég bara úr einu í annað og finnst ég ekki koma neinu í verk. Þegar verkefnin verða svona mörg er rosalega erfitt að halda fókus og maður getur aldrei sökkt sér djúpt niður í neitt. Og til hliðar við þetta er ég náttúrulega að reyna að sinna börnunum, taka æfingar og skipuleggja mig fyrir vinnuferð til Reykjavíkur og mótið á laugardaginn í Sandgerði. Það styttist einnig í hjólaferðina með börnunum og visa-reikningurinn hefur ekki verið svona ógeðslegur síðan jólin 2020. Get ég ekki fundið eitthvað meira til að grenja yfir?
En ég reyni að minna mig á það að ég sé í forréttindastöðu og mjög margir væru alveg til í að skipta við mig á vandamálum. Ég er heilsuhraustur, á heilbrigð börn, er kominn í samband með frábærri manneskju, hef fastar tekjur og þak yfir höfuðið. Fæ hollan og góðan mat á hverjum degi og á frábæra fjölskyldu og vini. Þarf maður ekki stundum að minna sig á þetta?
Æfingarnar ganga vel og ég er búinn að keyra frekar hart á þetta síðustu tvær vikur. Skv. helstu tölum á Trainingpeaks þá ætti ég strangt til tekið að vera mjög þreyttur en mér líður vel. Það er ágætt að hafa tölur og gildi sem leiðarvísir, en það er heildarmyndin sem skiptir máli. Og heildarmyndin snýst um staðfestu í æfingum til lengri tíma og hlusta á eigin líkama. Ég passa mig líka á því að borða hollt til að standa undir þessu og ég næ yfirleitt að sofa 7-8 klst. á hverri nóttu. Það skiptir miklu máli.
Í gær var 2x20 mínútna threshold æfing og ég hjólaði 2x upp í skíðahótel. Formið er fínt og ég hefði alveg klárað að fara einu sinni í viðbót. Í dag var 2 tíma róleg æfing en Harpa var með erfiðari æfingu og ég fór eitthvað að reyna að halda í við hana og tók óþarflega mikið á því. Á morgun á ég svokallaða 40's/20's (tabata æfingu) en ætla að breyta þar sem er stutt í mót og ég á brúninni með að vera of þreyttur. Í staðinn ætla ég bara að taka skemmtilegan hring hérna í bænum og taka nokkrar brekkur.
Það sem ég er að reyna að minna mig á í sambandi við æfingarnar núna er að mótið sem ég er að fara að keppa á um helgina er "C-race". Það er því ekki í neinum forgangi heldur í rauninni bara hluti af venjulegri æfingaviku. Ég ætla því að halda plani og reyna að toppa 25 júni og þá verð ég að vera betur úthvíldur.
Annars var verið að breyta leiðinni sem við förum á laugardaginn og B flokkur karla á að fara 96 km en ekki 69 km. Það er því nokkuð ljóst að maður verður lúinn á leiðinni heim á laugardaginn.
Ummæli