Ferð til Reykjavíkur og fleira
Að leggja upp í 4 klst. ferðalag- ekki þó til Reykjavíkur. |
Þá er dottinn á sunnudagur og hringurinn að hefjast á ný. Það er víst komið páskafrí í skólanum og ég var náttúrulega ekki búinn að gera ráð fyrir því frekar en venjulega. Þessi frí koma ævinlega aftan að mér og ég sit uppi með að þurfa að finna út hvað ég á að gera við börnin á meðan ég er í vinnunni. Það er sem betur fer eitthvað fimleikafjör hjá Dagbjörtu milli kl. 9 og 12 á morgun og hinn og það hjálpar eitthvað. Annars er vikan líka pökkuð af æfingum og þar sem það eru bara 18 dagar í fyrsta mót, þá vill maður halda sjó.
Það eru búnar að vera bláar tölur í veðurspánni eins langt og augað eygir en það varð breyting á því í gær og nú lítur út fyrir að maður fari að komast út. Ég ætla að taka hjólið með mér austur um páskana og vonandi næ ég góðum túr á Páskadag. Ef þokkalega viðrar, þá er ég að spá í að hjóla niður í Reykjadal, upp Presthvammana og Hólasandinn heim. Þetta er nokkurnveginn sama leið og verður farin á Íslandsmeistaramótinu, bara aðeins styttra.
Nesti fyrir langferð. |
Ég fór í vinnuferð til Reykjavíkur á föstudaginn og átti frábæran dag með sviðinu mínu. Við vorum að vinna í SVÓT greiningu og svo fórum við út að borða á Monkey's og í pílu á Skor sem er á Hafnartorgi. Mæli með hvorutveggja. Maturinn á Monkey's var frábær og pílukastið var alger snilld- hægt að velja fullt af leikjum og tölvutæknin sér um að reikna út allt skor og varpa upp á skjá.
Ég tók síðustu æfingu vikunnar (sem var "hvíldarvika") í gær. Ég hjólaði 4 klst. og náði að gera það án þess að stoppa. Ég ákvað að halda ca. 160 W og þetta var í raunninni ekkert mál. Ég rúllaði 134 km. og átti nóg eftir þegar ég kláraði. Eitt það mikilvægasta við svona langar æfingar er að passa upp á kolvetnahleðsluna og það tókst fullkomlega hjá mér í gær. Kex, hlaup, banani og eitthvað kruðerí héldu mér gangandi. Ég át 2 diska af Special K áður en ég byrjaði. Það er kannski ekki ideal- en slapp til.
Eftir vonbrigðin með FTP-testið er allavega gott að finna að þolið er fínt og ég á auðvelt með að taka langar æfingar. Ég ætla að halda áfram að vera trúr þessu plani sem ég setti upp og halda mig við það fram að móti. Held að það sé ekki rétti tíminn til að hræra í hlutunum. Svo er bara að sjá til hvort ég nái að hanga eitthvað í þessu liði sem verður í B-flokki. Ég er að fara að keppa við gaura alveg niður í 23 ára- en úrslit verða birt aldursflokkaskipt. Þar er ég í 40-49 ára.
Nú er orðið svo stutt í mót að planið hjá mér er farið að breytast töluvert. Það eru 10 klst. á viku næstu 3 vikurnar en svo fer tímafjöldinn aðeins að skrúfast niður þegar líður að A-mótinu mínu (Íslandsmeistaramótið). Að sama skapi fer ég að taka meira af Zone 5 og 6 sem er meiri ákefð og sprettir.
Yfirlit yfir næstu viku. Það getur verið að ég færi síðustu æfinguna út. |
Ummæli