Allskonar

Dekk, verkfæri, nýjir skór og hjartsláttarmælir.

Þessi vika átti að vera svo róleg en ég hef varla haft tíma til að anda. Brjálað að gera í vinnunni og svo hef ég verið að brasa heima við að undirbúa umpottun og koma saman hjólinu, þ.e. setja á það watta-pedala, setja klíta á skónna og umfelga svo ég verði tilbúinn út í sumarið. Keypti mér líka Giant hjartsláttarmæli sem svínvirkar. Ég er búinn að tengja watta-pedalana við Garmin hjólatölvuna og prufa að samkeyra þá með trainer-num. Pedalarnir sýna gjarnan á bilinu 10-30 wöttum minna en trainerinn og ég er aðeins að klóra mér í skallanum yfir þessu. Þeir taka mælingu á 3 sekúndna fresti og ég þarf að skoða hvernig trainer-inn er stilltur. Þetta gæti haft nokkur áhrif þegar ég fer að æfa úti.

Í dag tók ég risaákvörðun og afbókaði ferðina með Icelandair og keypti með Niceair sem flýgur frá Akureyri. Ég var með Flex-miða og fæ þetta endurgreitt að fullu. Flugið með hjólin og 3x20kg af farangri er ca. 35 þúsund krónum dýrara með Niceair- en það að losna við að keyra suður með allt draslið, gista og éta gerir þetta að "no brainer". Djöfull vona ég að fólk hér norðan heiða verði duglegt að nota Niceair og þetta eigi eftir að ganga upp. Steinar í vinnunni kom t.d. frá Ítalíu í gær með einhverju félagi sem lenti hér á vellinum og hann var kominn heim til sín 10 mínútum eftir að hann kom út úr vélinni.

Ég tók Ramp Test áðan (FTP-test) og ég bætti mig aðeins frá því síðast. En ég er samt bara að fá svipað út úr testi og ég fékk fyrir jólin. Ég er pínu svekktur yfir þessu en ég held að svona stutt explosive test séu ekki að henta mér mjög vel. Ef ég "pace-a" mig rétt er ég viss um að ég gæti skorað hærra á 20 mínútna testi, það hentar mér betur. En æfingarnar (sem stillast af miðað við FTP skorið) hafa s.s. alveg verið nægilega erfiðar. Ég ætla því bara að halda mínu róli í æfingunum og sjá hvað gerist þegar ég fer að keppa.

Nú er ég að hlaupa út og fara á fund um keppnissumarið með hjólreiðarfélaginu í Icelandair Hotel og það verður fínt að sjá hvort það myndist einhver félagsskapur í kringum þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap