Afmælis- og páskagleði

Það voru fínir páskar í sveitinni.

Það er ekki annað hægt að segja en að páskarnir hafi verið drullu-fínir bara. Ég tók bara einn dag í ofáti og gat varla staðið í fæturnar allan páskadag- ef frá er skilinn tíminn sem ég var á hjólinu. Ég hjólaði tvo hringi í kringum vatnið og aðstæðurnar voru bara helvíti góðar þó það hafi verið mótvindur frá Grímsstöðum og í Garð. Ég var mjög sprækur en verð að viðurkenna að ég fann aðeins fyrir þessu um kvöldið. Smá þreyta í löppunum. 

Það er svo mikill munur á því að hjóla inni og úti. Mér finnst ég ekki vera að erfiða jafn mikið en púlsinn er hærri heldur en á sambærilegum vöttum inni. Kannski er þetta bara sálrænt. Síðasta vika var því bara fín hjá mér á hjólinu þó ég hafi þurft að slaufa einni inniæfingu vegna þreytu (á laugardaginn). Það var svekkjandi en ég bara sýndi merki um þreytu, með of háan púls og hélt ekki uppi vöttum. Þá er betra að draga bara í land.

Dagbjört Lóa átti afmæli á páskadag og það var mikið fjör í Brekku. Allt skreytt, fullt af pökkum og Halldóra og mamma bökuðu alveg geggjaða afmælistertu. Bestu gjafirnar voru sjálfsagt fuglabolur frá afa og ömmu, gallajakki frá langömmu og geggjuð hjólagleraugu frá Hörpu sem hægt er að skipta um gler í. Að sjálfsögðu henti hún strax bleiku gleri í gang. Stelpan er að verða ansi vel búin fyrir hjólaferðina út til DK og SWE, komin með gleraugu, grifflur, hjólalás, bjöllu og geggjaðan jakka.

Ég var að koma heim úr vinnunni og nú ætla ég að kíkja út og taka góða æfingu í Veigastaðabrekkunni. Harpa ætlar að koma með og vera á svipuðum slóðum. Veðrið er fínt og það spáir bongó. Lífið er dásamlegt.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap