Næstu tvær vikur- lífið vs. æfingarnar

Næstu tvær vikur í Trainingpeaks

Fyrir covid gekk mér ágætlega að láta 6-12 klst af æfingum flúkta við fjölskyldulíf og vinnu. En það er snúnara þegar maður er á faraldsfæti. Næstu 2 vikur þarf ég að fara í burtu, 3 nætur í Reykjavík og svo ein vinnuferð til Vestmannaeyja.

Ég var búinn að vera með hausverk yfir því hvernig ég ætti að leysa þetta en er búinn að koma þessu inn í plan þar sem ég næ næstum því að púlla þetta. Ég missi niður 1:45 klst- sem er held ég alveg ásættanlegt. En til þess að ná þessu þá þarf ég að vakna tvisvar kl. 05:00. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi og maður drullast nægilega snemma í rúmið.

Annars er kominn föstudagur og notaleg tilhugsun að vera að fara inn í helgina. Það er s.s. ekki margt á prjónunum, kíkja í sund, baka bollur, hjóla og slappa af. Ég hugsa að börnin séu spenntust fyrir því að leika við vini sína. Allavega Dagbjört Lóa sem er aldrei í rónni nema eitthvað sé í gangi.

Það er frí í dag á hjólinu en ein erfið over/under á morgun og svo 3,5 klst á sunnudag💪

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap