Hitt og þetta
Rauðka komin í Jólahúsið! |
Æfingar vikunnar hafa gengið vel og ég er farinn að halda að covid-ið hafi í raun verið ágætis hvíld fyrir mig og ég vann mig skynsamlega út úr því. Það er reyndar alveg ljóst að ég næ ekki tímaviðmiði vikunnar vegna ferðalaga en maður verður að spila þetta eftir hendinni. Ég er búinn að keyra nokkuð hart á þetta síðustu 3 daga og það verður gott að taka tveggja daga hvíld. Í morgun átti ég 53 mínútna æfingu með frekar þungum sprettum og ég bakkaði út úr síðasta settinu þar sem ég var ekki að halda dampi. Maður þarf líka stundum að finna hvenær maður er hættur að gera sér nokkuð gott með streðinu.
Í gær var veðrið hérna á Akureyri svo ljómandi gott að ég nennti ekki að hjóla inni. Ég sló saman verslunarferð og spássitúr á ferðahjólinu. Ég hjólaði fram í Hrafnagil og einhvern hring hérna í bænum, samtals 37 km. Eftir kvöldmat hjólaði ég svo til Daníels og Ollu og hitti í fyrsta skipti afastelpuna mína sem var algert yndi. Daníel og Olla eru svo flott í þessu nýja hlutverki og standa sig ótrúlega vel. Ég er mjög stoltur af þessum ungu foreldrum.
En þessi túr kom mér upp í tss skorið sem ég átti að ná í gær og þar sem ég var ekki með wattamæli einbeitti ég mér bara að því að hafa þetta "þægilega" rólegt. Nóg um það.
Nýjustu fréttir af Trainingpeaks. |
Nú styttist óðum í fyrsta mótið, en það er eftir tæpan mánuð á Reykjanesi. Ég veit ekki ennþá hvernig flokkakerfið verður sett upp en það skiptir s.s. ekki máli. Ég fer til að læra og gera mitt besta. Ég á eftir að kaupa mér ný dekk, watta-pedala og skó. Stefni að því að ganga frá því í Reykjavík núna um helgina.
Ummæli