Heilsan upp og niður

GIANT TCR ADVANCED PRO DISC 1 AXS


Einn helsti mælikvarðinn á þessa veirupest hjá mér er að fylgjast með hvíldarpúlsinum. Í fyrradag var hann að malla í 55 sem er nokkuð eðlilegt fyrir mig þegar ég er ekki undir miklu æfingaálagi. Í gær rauk hann aftur upp í 70 og er á þeim slóðum í dag líka.

Í gær var ég einnig mjög pirraður í slímhúðunum og ekkert allt of vel upp lagður yfirleitt. Ég notaði því tækifærið og fór með hjólið í yfirhalningu og sleppti æfingu. Miðað við margar ljótar sögur af eftirköstum þá þori ég ekki að taka neina áhættu.

Ég ætla reyndar að pikka upp hjólið á eftir og mun taka klukkutíma rólega æfingu þegar ég kem heim. Annars held ég áfram að taka því rólega og er svo heppinn að vera með bílinn hennar mömmu síðustu daga og þarf því ekki að streða úti í kuldanum. Þegar ég hef verið heima við, þá hef ég aðalega legið fyrir og verið að hámorfa Gomorrah á rúv-sarpinum. Djöfull eru það svaðalegir þættir (ekki fyrir viðkvæma).

En varðandi hjólið þá var ég að láta skipta um keðju og kaupa nýja kasettu til að setja á afturgjörðina. Ég þurfti einnig að láta smyrja það og mæla sveifarnar til að sjá hvort ég geti keypt watta-sveifar frá Giant (aflmæli). Egill sem á Útisport bauð mér einnig til kaups Shimano c60 felgur á hálfvirði- en ég mætti alveg fara að huga að því að uppfæra felgurnar. En eftir að hafa lagt hausinn í bleyti ætla ég ekki að eyða svona miklum peningum í hjólið að svo stöddu. Ég hugsa að ég kaupi mér frekar watta-pedala sem ég get svo selt þegar ég fæ mér nýtt hjól- en ég ætla að eiga þetta áfram til að hjóla inni. Þegar ég er með það á trainer-num þá þarf ég ekki wattamæli. Svo er bara að kaupa ný dekk og láta það nægja. 

En hjólið sem ég stefni að því að kaupa á næsta er Giant TCR og fær alltaf alveg svakalega dóma. Það verður væntanlega langdýrasta hjól sem ég hef keypt og ég á eftir að þurfa að punga út 700 þúsund krónum.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap