Covid - Dagur V

Performance Management Chart úr Trainingpeaks.

Jæja þá er dagur 5 í covid búinn og ég hugsa að ég segi bara bless við þessa flensu. Mér hefur liðið býsna vel í dag ef frá er talið að nefið á mér hefur verið pakkað og ég alltaf að snýta mér. Ég er að reyna að halda aftur af mér í Otrivin-dælingum, þar sem ég held að það geti ekki verið of gott að nota það mikið. Ég dæli svo bara vel fyrir svefninn og sé hvort ég sofi þá ekki eins og ég sé andvana.

Það var stefnan að fara í vinnuna á morgun, en þegar ég fór svo að telja dagana í dagatalinu, þá sá ég að ég á víst strangt til tekið að vera heima á morgun- allavega ef ég ætla að hlýða Víði. Og það er best að gera það bara, ég nenni ekki að smita fólk af óþörfu. Guðrún er ennþá drulluslöpp og ég verð því með börnin einn dag í viðbót.

Ég ætla að hjóla í 30 mínútur á morgun og sjá hvort það fari ekki vel í mig. Áðan lagðist ég aðeins á gólfið og gerði smá teygjur og rúllaði mig þar sem ég var orðinn eitthvað hálfstirður af allri þessari kyrrsetu. Tók meira að segja nokkrar upphífingar.

Ég kíkti líka aðeins á Trainingpeaks áðan og er að reyna að pirra mig ekki of mikið yfir því hversu hratt formið fellur. CTL skorið hjá mér var komið upp fyrir 40 þegar ég veiktist en er núna komið niður í 36. Þar sem ég bakfærði ekki æfingarnar mínar úr Strava þegar ég byrjaði á TP þá ætti þessi tala náttúrulega að vera mun hærri. Annars má maður ekki einblína um of á CTL þó það sé ágætis mælikvarði á í hvernig formi maður er.

Fyrir þá sem hafa áhuga á þessu þá er skyggða svæðið formið sem ég er búinn að vera að byggja upp, en bláa punktalínan er spá út frá þeim æfingum sem ég er búinn að setja inn í dagatalið. Þar sem ég er að fara að taka út lyftingarnar og bæta við hjólaæfingum þá er þetta ekki að marka. Ég stefni að því að vera kominn upp í svona 80 í CTL þegar fyrsta keppnin er. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap