Covid - Dagur IV

Þó ég verði alveg góður á morgun þá hugsa ég að ég bíði með hjólið fram á mánudag.

 

Þá er runninn upp laugardagur og hann hefur verið sá skásti síðan ég tók veiruna. Ég vaknaði um kl. 6 í morgun og var kafstíflaður í nefinu. Ég fékk mér Otrivin og náði svo að sofa til kl. 9. Síðan þá er ég aðalega búinn að vera hnerrandi og þarf stöðugt að vera að stnýta mér. Ég er kominn í vinnuna og þarf að sjá um hreindýraútdráttinn sem hefst kl. 14 í beinni útsendingu.

Það væri freistandi að skella sér á hjólið á morgun ef ég verð orðinn góður en ég er að hugsa um að bíða með það fram á mánudag. Ég hugsa að ég byrji á 30 mínútum á 50% af FTP, fari svo upp í klukkustund daginn eftir og taki svo kannski bara klukkustund á dag fyrstu vikuna og hafi þetta rólegt. Þannig held ég við einhverri brennslu en keyri svo á fulla viku eftir það. 

Skv. upprunalega planinu ætti ég að halda áfram lyftingum út þennan mánuð en ég hugsa að ég fari að henda þeim út núna þar sem ég þarf að fara að bæta inn meiri ákefð og erfiðari æfingum á hjólinu. Eftir þetta tímabil mun ég byrja lyftingarnar mun fyrr, sennilega í október og hætta þeim í janúar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap