Covid - Dagur I
Mouth fluid covid test. |
Jæja það kom að því sem ég óttaðist. Í gærkvöldi var ég kominn með nettan hausverk og meiri pirring í hálsinn. Ég svaf ágætlega framan af nóttu en losaði svo svefninn um kl. 04:00 og svaf ekki vel eftir það. Ég fór að lokum fram úr klukkan rúmlega sex og skellti í eitt slefpróf sem staðfestið veiruna.
Dagurinn byrjaði samt ágætlega og ég hjálpaði börnunum út í öskudaginn og fór svo aðeins að vinna. En eftir hádegismatinn fór eitthvað að lækka á mér risið og ég er ekki til stórræðanna núna. Ég er með hausverk, pirring í hálsi, ringlaður og latur. Annað sem ég ég tek eftir er að hvíldarpúlsinn hjá mér er 70 í dag sem er 15 yfir því sem hann er yfirleitt. Ég hugsa að ég fylgist vel með honum áður en ég fer að æfa aftur.
Ef batinn gengur vel hjá mér, þá stefni ég að setjast eitthvað á hjólið í næstu viku og reyna að halda púlsinum fyrir neðan 115. Ef það gengur vel mun ég smám saman bæta við mig og stefni að því að taka fulla viku 14-20. mars. Það er frekar erfitt að sætta sig við að vera að missa úr æfingum þegar maður er að æfa fyrir svona stóra viðburði en það er lítið við þessu að gera. Það mikilvægasta er að hugsa vel um sig og reyna að missa sig ekki í eitthvað sukk og vitleysu.
Eins og ég nefndi einhverntíman þá ætla ég að fara að taka aðeins meira til í mataræðinu hjá mér þennan mánuðinn. Í grunninn er það einfalt; henda út kökum og nammi og passa að allar máltíðir innihaldi:
- Prótein
- Holla fitu
- Kolvetni
- Grænmeti
- Grænfóður (greenies)
Ég ætla einnig að leggja meiri áherslu á að éta alvöru mat eftir æfingar, t.d. haframjöl með ferskum bláberjum, smá hnetusmjöri og möndlumjólk. Því hefur lengi verið haldið fram að best sé að fá sér próteinblandað kolvetni (duft) eftir hjóla- eða hlaupaæfingar en það hefur verið afsannað í rannsóknum. Aðalatriðið er að fá kolvetni og andoxunarefni. Það getur t.d. verið mjög gott að eiga granadaepla-safa, bláberjasafa eða tómatdjús og éta með því banana, haframjöl eða annan kolvetnagjafa. Tilbúnar "recovery" blöndur eru oft dýrar og ekki eins hollar. Minn covid-sjúki haus nennir ekki að leita að rannsóknum til að bakka upp þessar fullyrðingar. Og minn covid-sjúki haus veit heldur ekkert hvert ég er að fara með þetta þannig ég segi þetta gott í bili.
Ummæli