Bless bless covid (vonandi er ég ekki að jinxa þetta)

Ég og Dabjört á leið í fimleika í dag.

Jæja þá held ég að ég sé að ná að losa mig við þetta covid ógeð- sem kannski var reyndar aldrei svo hroðalegt. Fyrir mér var þetta bara eins og frekar langvinn kvefpest. Í morgun var ég reyndar frekar stíflaður og eitthvað að hósta en ég gat alveg unnið. Og svo er ekki útséð með eftirköst en ég bara vona það besta.

Eftir að hafa komið Brynleifi í tónlist og Dagjbörtu í fimleika þá settist ég á hjólið og kom löppunum aðeins í gang. Lungun og pumpan voru alveg fín en ég fann á löppunum að ég hef ekki hjólað í 6 daga. Það er sennilega lengsta pása sem ég hef tekið í tæpt ár. Eftir þetta fórum við svo í sund og létum líða úr okkur. Börnin fara svo til mömmu sinnar eftir skóla á morgun.

Á morgun ætla ég að taka klukkutíma í rólegheitum og það sama er upp á teningnum á miðvikudaginn. Þá kemur einn hvíldardagur en svo 2 klst endurance, einn dagur frí og svo rúmlega 3 tímar á sunnudaginn. Ef ég geri þetta ekki með of miklum látum þá ætti þetta að vera alveg hæfilegt.

Næsta vika byrjar svo með látum og þá fer ég að keyra upp ákefðina og það detta inn djúsí æfingar (over/unders og VO2 max). Verstur fjandinn að ég þarf að fara suður 2 vikur í röð og það verður erfitt að setja upp plan fyrir þær vikur. 

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap