Áfram veginn
Það eru ekki til margar myndir af manni úr vinnunni en þessa tók Þórdís Björt samstarfskona mín á teymisstjóradögunum sem fóru fram í Reykjavík um daginn. |
Ég held áfram að halda dagbók um hvernig manni gengur að koma sér á réttan kjöl eftir veiruna. Ég var bara fínn í morgun þó ég væri að hósta og snýta mér mikið. Mér leið vel í vinnunni framan af en þegar ég var að klára daginn þá var ég orðinn drullu skrítinn, með vægan hausverk og ringlaður. Maginn var heldur ekki upp á það besta.
Eftir vinnu þá hjólaði ég heim og kom við í Nettó á leiðinni. Ég hresstist nú heldur við að fara aðeins út og ákvað því að taka æfingu þegar ég kom heim. Ég átti að hjóla í 2 tíma en ákvað að skrúfa það niður í klukkutíma og taka frekar aftur æfingu á morgun. Ég reyndi að færa mig upp um zone frá æfingu dagsins í gær- og það var reyndar ekkert svo auðvelt. En maður ætti kannski bara að vera feginn að geta gert eitthvað.
Eftir æfinguna skellti ég mér í bað og á meðan ég lá þar ákvað ég að panta pizzu og taka góða slökun í kvöld. Þegar ég horfði hinsvegar á þessar sveittu og feitu hveitiklessur á heimasíðunni, þá snérist mér hugur. Það endaði því með því að ég fór í ísskápinn, gerði salat með fetaosti, 2 spæld egg á ristuðu brauði og epli með kotasælu og múslí. Sparnaður og topp næring á meðan maður er að koma sér til heilsu.
Systir mín er að fara að halda tónleika með Valdimari í Mývatnssveit um helgina og ég ætla að skella mér. Ég næ í bílaleigubíl á morgun og sæki tónlistarfólkið á flugvöllinn um kaffileitið. Þetta verður örugglega hörku fjör.
Ummæli