Af verðlagi
Garmin Rally SPD-SL wattapedalar |
Nú er ég búinn að græja það sem uppá vantaði fyrir keppnistímabilið á götuhjólinu. Ég fór í Garminbúðina í gær og verslaði mér watta-pedala og get því farið að taka æfingar úti þegar veðrið skánar. Þetta er eitt af því dóti sem ekki borgar sig að panta að utan.
Síðan kíkti ég í GÁP og mátaði skó sem kostuðu 29.000 kr. og ég var búinn að skoða dekk í Útisport sem kosta 10.900 kr/stk. Ég endaði með að fara á Bike24 á netinu (Þýskaland) og panta þetta auk tveggja verkfæra. Hingað komið með tollum og gjöldum borga ég ca. 30.000 kr. sem þýðir s.s. að ég er að fá dekkin og verkfærin ókeypis miðað við að versla hér heima.
Mig langar að óskaplega að styrkja búðir hér heima og vera í viðskiptum við þær en stundum hefur maður bara ekki efni á að vera í góðgerðarstarfsemi. Eins og ég hef áður sagt þá ætla ég að versla hjól af Útisport fyrir næsta tímabil en aukahluti og annað dót held ég áfram að panta sjálfur, því miður.
Ummæli