VO2 max

VO2 max æfing vikunnar.

 Markmið VO2 max æfinga er að bæta súrefnisupptöku líkamans og flæði súrefnis í blóðrásinni til vöðvanna. Þetta snýst um að vera að vinna á mörkum þess að detta inn á loftfyrrta kerfið. Þetta hjálpar mikið til við endurheimt milli áreynslu, sem kemur sér t.d. vel í keppni þegar maður þarf oft að taka snarpa spretti en hægja á inn á milli. Það er t.d. klassískt að menn stingi af eftir brekkur og þá eru það þeir sem geta haldið áfram á miklu efforti sem komast í burt- þeir eru fljótir að jafna sig.

Ég tók eina klassíska VO2 max æfingu í síðustu viku (4x4 mínútur) og var alveg að skíta á mig. Ég ákvað því að stytta álagstímann núna (intervals) og setti hann frá 2 mín og niður í 30 sekúndur. Þetta voru allt í allt 12 blokkir = 15 mínútur á 108-120% af FTP. Eins og sést á bleiku línunni þá var ég að gera gott betur og þetta gekk bara hrikalega vel. Ætli ég hafi ekki bara verið þreyttur í síðustu viku. Næst ætla ég að prufa hvort ég ná ekki að halda út í 4x4 mínútur.

En vikan er s.s. búinn að vera helvíti fín hjá mér þó álagið hafi verið mikið. Áðan tók ég erfiða lyftingaæfingu og hjólaði svo í klukkutíma. Ég sé reyndar að ég á eftir 3 klst. endurance æfingu og klukkutíma recovery æfingu til að klára vikuna. En jæja, það er hvíldarvika næst þannig ég hlýt að lifa þetta af.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Negri í Þistilfirði

The Rift 2025 - Frá himnaríki til........

Æfingar rúlla af stað...