Vikuuppgjör VI - vika 5 í Base + FTP test

Vikuupggjör úr Strava

Jæja þá er þetta blessaða FTP test sem ég var að bíða eftir búið og það endaði ekki eins og ég var að vona. Ég er búinn að taka þrjú FTP test síðan í haust og niðurstaðan hefur verið þessi:

  • 29. september 2021 (20 mínútna FTP test) = 238W sem var 3,6 W/kg
  • 23. nóvember 2021 (Ramp test) = 243W sem var þá 3,74 W/kg
  • 11. febrúar 2022 (20 mínútna FTP test) = 236W sem er 3,6 W/kg

Nú væri freistandi að fara að hræra í æfingaprógramminu en ég ætla að sofa alveg rólegur. Það eru vissulega vonbrigði að 20 mínútna testið í september hafi verið betra en það sem ég tók núna en ég ætla að giska á að ég sé bara að venjast þessu mikla æfingaálagi og svo hef ég aðalega verið að hjóla endurance.

Ég gerði smá mistök í prófinu núna og reyndi að halda 255-275W í upphafi sem var aðeins yfir markið. Þetta þýddi að ég datt niður um miðbik prófsins og rétt náði að halda 220W. Þegar 5 mínútur voru eftir setti ég í þyngri í gír og kom mér aftur upp í ca. 300W til að klára þetta. Mér fannst það reyndar góðs viti að ég næði að gefa í aftur í lokin en ég var klárlega búinn með allt þegar þetta kláraðist.

Annars eru þessi 20 mínútna FTP test hreinasti viðbjóður. Ég hef aldrei á ævinni gefið jafn mikið í eina æfingu og ég var við það að detta af hjólinu í lokin. Ég losnaði úr öðrum klítanum, missti handklæðið í gólfið og hékk fram á stýrið stynjandi og slefandi eins og aumingi. Ég var farinn að hafa áhyggjur af því að nágrannarnir myndu hringja í lögguna því þetta var farið að hljóma eins og það væri kynlíf í gangi með samþykki annars aðilans. 

Ég er að spá í að breyta aðeins æfingaplaninu í næstu viku og taka aftur test- núna ramp test. Ef ég fæ svipaða niðurstöðu úr því þá hugsa ég að ég taki ekki 20 mínútna test í bráð heldur notist bara við ramp test þar sem þau taka styttri tíma og maður er ekki jafn lengi að jafna sig (ég sleppti lyftingaræfingunni eftir testið). Maður getur þá tekið það á 3-4 vikna fresti. Aðalatriðið við að vera með rétt FTP gildi er að maður byggir upp allar æfingarnar í kringum það. Ef maður er með of lágt, þá er maður ekki að fá nóg út úr æfingunum og ef það er ofmetið, þá er maður ekki að ná að klára æfingar. 

En annars gengur planið vel eins og sést á myndinni hér með póstinum. Hvíldarvika að baki og nú fer ég að byggja upp tímana aftur viku fyrir viku. Það eru 8:15 klst á matseðlinum þessa viku sem er vel viðráðanlegt. Svo fer ég upp í 10 klst og enda þessa blokk á feitri viku með 11:15 klst.


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap