Kófið á góðu skriði í vinnunni
VO2 max æfing dagsins |
Fólk sem ég var að vinna með í vikunni hefur nú greinst með covid. Við hin erum náttúrulega farin að óttast það versta og maður fer að finna fyrir einhverjum einkennum, eða ímynda sér þau. Ég tók heimapróf í gær og í dag og er í það minnsta neikvæður skv. þeim. Maður vonar bara að sú sem var að vinna með okkur hafi ekki verið smitandi.
Ég er að fara í flug til Reykjavíkur núna kl. 19:00 og á að lenda í bænum laust fyrir klukkan átta. Ætlaði að heimsækja Helgu systir og Geira en það er búið að demba á mig fundi og einhverju verkefni í kvöld þannig ég verð að spila það eftir hendinni. Ég verð svo bara að taka heimapróf í fyrramálið áður en ég fer á fundi og vona það besta. Nenni eiginlega ekki að vera sjúkur á hóteli þar sem er orðið augljóst að fluginu mínu norður verður frestað.
En ég náði að taka helvíti góða æfingu áðan. Um daginn skeit ég á mig í 4x5 mín VO2 max þannig ég fjölgaði settunum og stytti þau niður í 2 mínútur. Þetta var drullu erfitt en ég kláraði þetta allavega. Ef ég verð ekki sjúkur á morgun þá mun ég taka lyftingaæfingu á Grand hótel og vinna mér í haginn fyrir laugardag.
Næsta vika er algerlega geðveik í vinnu og barnastússi og ég þarf að bíta í það súra efli að stytta þá viku. Ég ætla að leggjast yfir það hvernig ég geri það þannig það hafi sem minnst áhrif á plönin.
Ummæli