Vikuuppgjör III - vika 2 í Base
Síðustu 4 vikur á Strava (blátt hjól og grátt lyftingar). |
Jæja þá er vika 2 í Base 1 lokið. Þessi grunnþjálfun er í 3 mánuði og skiptist í Base 1, 2 og 3. Trendið sem sést hérna fyrir ofan, þ.e. stigvaxandi fjöldi klukkustunda heldur áfram næstu 2 vikur áður en ég dett inn í hvíldarviku sem verður "bara" 5:45 klst.
Líkaminn hefur verið að bregðast ágætlega við þessum auknu æfingum og ég er ekkert líkamlega þreyttur. Reyndar finnst mér ég alveg hafa verið öflugri á hjólinu en ég ætla nú ekkert að bakka út úr þessu strax. Ég fylgist bara vel með hvíldarpúls og hlusta á líkamann. Ef ég skora mjög lágt á FTP testinu sem ég tek í síðustu vikunni í Base 1 þá kannski þarf ég eitthvað að hugsa mig um.
Það er afskaplega hvetjandi að sjá hverja æfinguna á fætur annari klárast í dagatalinu. |
Hér fyrir ofan er svo yfirlit yfir hvernig vikan var hjá mér. Ég er að fíla það í ræmur að nördast í þessu og nú er ég líka búinn að setja upp hlaupaplan fyrir móður mína og er staðráðinn í að láta hana ná betri árangri en hún hefur nokkurntíman gert :)
Ummæli