Ruglað sumar

Það er búinn að vera fínn gangur hjá mér í ræktinni og ég er kominn vel upp í þyngdum án þess að fá stengi.

Nú hefur það gerst, án þess að ég hafi nokkuð lagt mig fram um það, að sumarið er að verða algerlega útúr skipulagt og ég sé varla framúr hvernig ég ætla að ná að púlla þetta. En ég ætla að koma þessu hérna aðeins niður á blað og reyna að sjá framúr þessu.

Bikarmót í götuhjólreiðum byrja 30. apríl. Það næsta er 28. maí og svo stefni ég að því að vera líka með þann 4. júní. Þetta er allt á Suðurlandi og krefst því skipulags og ég verð að vera búinn að græja hjólið frekar snemma.

Þorvaldur kemur svo til mín vikuna 13.- 19. júní og við ætlum að hjóla frá Akureyri, í Suðurárbotna og svo í Brekku. Við gistum í skálum og setjum að sjálfsögðu fyrirvara varðandi snjóalög og veður.

Þann 19. júní flýg ég til Reykjavíkur og svo til Finnlands og verð þar á fundum til 23. júní. 

Þegar ég kem heim hef ég einn dag til að ná mér niður og keppi svo á Íslandsmótinu í götuhjólreiðum þann 25. júní. Svolítið pirrandi að þetta hitti svona á en það þýðir ekki að hugsa um það.

Þá hef ég 3 daga til að pakka öllu hjóladótinu fyrir hjólaferðina með börnunum í Svíþjóð og Danmörku. Við förum reyndar ekki út fyrr en 4. júlí en ég ætla að reyna að leigja íbúðina út þegar N1 mótið er 29. júní til 3. júlí til að ná smá pening upp í ferðalagið. Þetta krefst gríðarlegs skipulags enda ekkert smá mál að ferðast með 3 hjól og allt útilegudótið.

Við börnin verðum úti til 18. júlí og svo verða þau hjá mér alla vikuna eftir það. Ég hef reyndar ekki nelgt niður nein hjólamót eftir það en langar örugglega að keppa eitthvað meira.

Það sem er kannski flóknasta í þessu eru að ég á eftir að kaupa fullt af dóti fyrir ferðalagið með krökkunum og koma götuhjólinu og ferðahjólinu í slipp. Það er sérstaklega snúið með götuhjólið þar sem ég má helst aldrei missa það í meira en 2 daga. Ég á ennþá eftir að finna wattamæli, felgur og synca hjólatölvuna við þetta.

En þetta eru s.s. bara lúxusvandamál og þetta verður geggjað sumar. En ég hefði s.s. líka alveg verið til í að hafa 2 vikur þar sem ég væri ekki með neitt planað, bara til að slappa af.

Skjámynd af vikunni hjá mömmu.

Okkur mömmu gengur ágætlega að koma henni af stað í æfingaprógrammið fyrir Þorvaldsdalsskokkið. Ég er búinn að ná að samtengja fyrir hana Apple Workout, Strava og Trainingpeaks. Þegar hún líkur æfingu þá load-ast hún inn í þjálfara-dagbókina mína. Við tökum 2-3 vikur rólega núna á meðan hún er að koma sér í gírinn og svo förum við að skrúfa upp í þessu.

Í gær tók ég sjálfur lyftingaæfingu og svo klukkutíma recovery hjól. Líður ágætlega í dag en finn s.s. að hnébeygjurnar tóku í eins og þær eiga að gera. Svo er 1,5 klst endurance eftir vinnu í dag.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap