Markmið 2022 - yfirfarin
Í skautasvellsbrekkunni síðasta sumar. |
Ég fór að grufla hér í gömlum póstum og reyna að grafa upp markmiðin sem ég setti mér í lok ágúst. Ég var nú eitthvað að halda aftur af mér því ég var með allavega eitt markmið sem ég lét ekki fljóta með og var eitthvað hræddur við að birta.
En allavega, þegar ég setti mér þessi markmið þá var það s.s. bara með hálfum hug og ætlaði alltaf að kíkja á þetta aftur. Í rauninni finnst mér ég samt svo mótíveraður að ég velti því fyrir mér hvort ég þurfi eitthvað að vera að setja mér markmið? En ég held samt að það sé ágætt að geta strikað eitthvað út og gott þegar maður þarf að mótívera sig fyrir næsta ár og setja eitthvað nýtt á listann.
En markmiðin sem ég setti mér voru eftirfarandi:
- Taka þátt í fleiri mótum
- Ormurinn
- Gagnamótið
- Brekkukóngur
- Hjóla 200 km í beit
- Skafa 3 míntútur af tímanum mínum upp í skíðahótel
- Skafa 30 sekúndur af tímanum mínum upp skautasvellsbrekkuna
Og svo var það markmiðið sem ég setti ekki inn, en það var að fara upp í 4 W/kg í FTP. Ef ég man rétt þá var ég í 3,6 W/kg þegar ég setti markmiðið.
Í tengslum við verkefnastjórn í vinnunni hefur maður stundum rekist á það sem kallað er SMART goal setting og það þýðir í raun að markmið þurfa að vera:
Specific (skýr)
Measurable (mælanleg)
Action-oriented (aðgerðamiðuð)
Realistic (raunhæf)
Time (tímasett)
Eftir að hafa séð nýja mótaskrá ársins 2022 þá er ég búinn að þurfa að breyta aðeins markmiðunum mínum en þau eru samt í grunninn eins. Markmiðin mín fyrir 2022 eru:
- Taka þátt í fleiri mótum og hafa gaman
- Hjóla allavega 8000 km á árinu
- Taka þátt í 3 bikarmótum (aprí, mái og júní)
- Taka þátt í Íslandsmótinu 2022 (25. júní)
- Hjóla með Þolla Ak-Sörlastaðir-Suðurárb-Mývatnss
- Hjóla með börnunum DK til Svíþjóðar
- Hjóla 200 km í beit
- Skafa 3 míntútur af tímanum mínum upp í skíðahótel
- Skafa 30 sekúndur af tímanum mínum upp skautasvellsbrekkuna
- Komast í 4 W/kg í FTP
Þar hafið þið það… og ég sé ekki betur en að þetta falli vel undir þetta SMART kjaftæði sem á að vera svo frábært.
Ummæli