Vetr

Það var barasta jólalegt í gærkvöldi.

Ég held að það megi segja að lífið hafi barasta leikið við mig þessa vikuna. Ég átti naturligt afmæli á mánudaginn og það var óskaplega notalegt að fá hlýja strauma, bæði í gegnum fésbókina, ótal mörg símtöl og svo reyndu börnin að stjana við mig á sinn einstaka hátt. Dagbjört Lóa gaf mér fallegt málverk, gamalt ostasnakk sem henni finnst vont og Brynleifur gaf mér innrammaða mynd af sér frá Goðamótinu. Þórður bauð mér svo í svakalega Tomahawk steik á Bryggjunni og Halldóra bauð mér og börnunum í afmælismat í gær. Hún gaf mér líka forláta lambhúshettu sem hægt er að rúlla upp í kúl hippsterahúfu. Þetta er alveg geggjað til að hafa undir hjólahjólminum.

Í gær var ég svo með kynninguna „Hin hliðin“ í vinnunni þar sem ég fór eitthvað yfir hjólaferðir, bíllausan lífsstíl og myndlist. Ég held það hafi nú heyrst að ég var eitthvað pínu stressaður í upphafi en ég held að þetta hafi alveg sloppið. Ég fékk allavega klapp á bakið og mér sagt að þetta hafi verið mjög hvetjandi kynning, og það var jú akkúrat það sem ég vildi ná fram.

Eftir smá þreytutímabil á æfingum í síðustu viku þá held ég að ég sé búinn að ná mér á strik aftur. Ég hjólaði frekar harða klukkutíma æfingu á mánudaginn og leið bara vel. Eftir vinnu er komið að einni tempóæfingu og svo er ég að spá í hvort ég eigi að nenna að hjóla 100+ km á laugardaginn. Ef ég geri það er stefnan að halda ca. 180 W og klára þetta á undir 3 tímum. Ég þarf að undirbúa mig vel fyrir þetta andlega því það tekur hrikalega á að hjóla svona lengi inni. Ég hef verið að reyna að horfa á eitthvað á meðan ég hjóla en held ekki einbeitingu. Þarf sennilega að halda mig við að hlusta á podcast eða hart techno.

Mataræðið hjá mér hefur verið svona la la upp á síðkastið. Kannski óþarflega mikið sukk og of lítið grænmeti. En meginstoðin í mataræðinu hjá mér þessa dagana hefur verið þessi blessaði morgunþeytingur sem ég geri, en hann inniheldur: spínat (og stundum gúrku), banana, granada-eplakjarna, avocado, chiafræ, hampfræ, plöntuprótein og hafra- eða möndlumjólk. Þetta stendur mjög vel með mér og heldur mér yfirleitt góðum fram að hádegi. Klárlega eitthvað sem ég mun halda áfram að gúffa í mig.

Það byrjaði að snjóa aftur í gærkvöldi og ég er bara nokkuð ánægður með það. Það birtir yfir og heldur helvítis svifrykinu niðri. Það er langt frá því að vera eðlilegt að fólk í þessum bæ eigi bara að sætta sig við að mengunin hérna fari reglulega langt yfir heilsuverndamörk og viðkvæmir hópar og börn eigi að halda sig inni. Þá er snjórinn betri og bara gaman að þvælast um á Puggnum. 


Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap