Notaleg helgi

Fékk góðan gest í heimsókn áðan.

Jæja nú er en ein vikan flogin hjá og víst kominn laugardagur. Börnin vöktu mig klukkan 07:30 og heimtuðu sinn samningsbundna símatíma í morgunsárið. Ég hafði ekki um annað að velja en að drattast á lappir, fá mér kaffi og taka fréttarúnt. Eftir það tók ég klukkutíma æfingu á hjólinu og skellti mér svo í bað. Síðan dró ég börnin niður í vinnu en ég er að vinna að kynningu sem heitir "Hin hliðin". Þetta er kynning á sjálfum mér og mínum áhugamálum sem ég á að standa skil á á þriðjudaginn. Það þarf kannski ekki að koma neinum á óvart en ég mun að mestu tala um bíllausan lífsstíl, hjólaferðalög og reiðhjól í víðasta samhengi. Svo reyndar blanda ég inn í þetta myndlist og skissum.

Það verður að viðurkennast að mér finnst alveg ótrúlega gaman að taka þetta saman og ég gjörsamlega týni mér í þessu. Þetta minnir mig á tímana þegar ég var gjörsamlega niðursokkin í að mála, algert tímaleysi og ótrúleg vellíðan. Kannski verður þetta eitthvað gateway fyrir mig inn í að byrja að skapa aftur. Ég vona það allavega.

Núna eru börnin einhverstaðar úti í buskanum að leika við vini sína og ég sit í stofunni, sötra kaffi og hlusta á huggulega tónlist. Það er sunnan fræsingur úti og snjórinn að hverfa eins og dögg fyrir sólu. Fínt að þurfa ekki að vera á ferðinni í dag. Áðan kom Inga Eydal í kaffi og verslaði af mér 2 myndir. Ég er alltaf jafn hissa á því hvað ég næ að grafa upp úr kössunum einhverjar myndir sem fólk vill kaupa. Ég er örugglega búinn að selja 10-15 málverk síðan í vor án þess að hafa málað nokkurn skapaðan hlut.

Um daginn lenti ég í partý með gaur sem er listamaður og sálfræðingur og fórum við að ræða sköpun. Ég sagði honum að ég væri búinn að sætta mig við það að vinna bara dagvinnu og eiga sköpunina sem áhugamál. Hann sagði við mig "Bíddu hægur, þú ert að segja mér að þú getir málað myndir sem fólk er æst í að kaupa, en þú nennir ekki að mála?". Síðan las hann aðeins yfir hausamótunum á mér og sagði mér að taka frá 2 tíma á dag og drullast til að gera eitthvað. Hann sagði að þetta væri bara ákvörðun og ég einn réði því hvort ég gerði þetta að atvinnu eða ekki. Hann sagði að það væri ekkert mál fyrir mig að vera í 80% vinnu og mála einn dag í viku. "Langar þig ekki til að mála einn dag í viku?". Ég verð að viðurkenna að þetta hreyfði aðeins við mér og ég veit að það er ótrúlega mikið til í þessu. Kannski ætti ég að hætta að þvælast fyrir sjálfum mér. Ég er sá eini sem get komið í veg fyrir að ég geri það sem mig langar.

Jæja ég ætla að setjast við vinnuborðið og mála eina mynd.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap