Mygla?
Ég er búinn að vera með skrítin líkamleg einkenni allt frá árinu 2016. Það fyrsta sem ég varð var við var breyting á lyktarskyninu, sem er vægast sagt mjög dapurt á köflum. Þetta er hvimleitt og ég sakna þess mjög að finna ekki lykt þegar ég er úti í náttúrunni, sérstaklega í skógi, niðri við sjó eða þegar það er nýbúið að rigna.
En ég man að ég var staddur í flugvél á Reykjavíkurflugvelli þegar ég tók fyrst eftir þessu. Bara eins og hendi væri veifað. Á þeim tíma var ég að vinna verkefni fyrir Mýsköpun og fékk gjarnan gistingu í kjallaranum á Sólvallagötunni hjá Maju og Gísla. Núna er ég farinn að velta því fyrir mér hvort eitthvað í umhverfinu þar hafi triggerað þetta?
Sama ár flyt ég svo í Dalsgerðið þar sem lekið hafði bakvið innréttingu í þvottahúsinu niðri og þar var gjarnan fúkkalykt. En ég hafði engar áhyggjur af því þannig lagað og hélt að fúkkalykt væri bara fúkkalykt.
Síðan keypti ég mér í Hjallalundinum og þá gerði ég við gamlar vatnsskemmdir í spónaplötuvegg sem snýr að baðinu. Og ég lagði parket yfir línóleum- eða vínildúk sem greinilega hafði orðið fyrir vatnstjóni. Síðan ég flutti í Hjallalundinn hef ég verið að glíma við útbrot sem eru þrálát og mig klæjar stanslaust á bakinu og á öxlunum. Þessi einkenni hurfu gjörsamlega þegar ég fór í hjólaferðina mína í sumar.
Það er bara nýverið sem ég fór að sjá mynstrið í þessu og velta fyrir mér hvort það geti verið að ég hafi frá árinu 2016 verið útsettur fyrir myglu? Ég er búinn að tala við Guðríði Gyðu sveppafræðing hjá Náttúrufræðistofnun og hún telur mjög líklegt að það sé einhver óþverri á ferðinni heima hjá mér. Hún var svo góð að bjóða mér að taka ryksýni og þau ætla að skoða hvort þau finni í fljótu bragði gróf úr slæmum sveppum. Ef það verður raunin, þá þarf ég væntanlega að staðfesta það með frekari sýnatöku sem krefst þess að ég rífi upp gólfefni og bori með dósabor í spónaplötuvegginn.
Ef þessi grunur er á rökum reistur gæti þetta þýtt meiriháttar framkvæmdir heima hjá mér þar sem ég þarf að flytja út úr íbúðinni í einhvern tíma. Það þarf þá væntanlega að rífa einn vegg, hreinsa upp allt gólfefni á baði og í herberginu mínu. Það þarf hreinlega að strípa allt baðherbergið. Og svo ef ég á að toppa mig í svartsýninni, þá er vínil- eða línóleum gólfdúkar undir parketinu á barnaherbergjunum og í eldhúsinu. Þessir dúkar eru algert eitur þegar kemur að sveppum.
En jæja, eitt skref í einu. En ég hvet áhugasama til að horfa á fyrirlestur Guðríðar Gyðu hér að ofan- þetta er sannarlega eitthvað sem maður þarf að taka alvarlega.
Ummæli