Ekkert að frétta

Strákarnir finna sér alltaf eitthvað að gera milli leikja. Þetta uppátæki varð til þess að einhverjir foreldrar sussuðu á þá og sögðu að þeir væru að trufla þau við að horfa á leikinn.

Stundum finnst mér ég verða að skrifa hérna inn þó ekkert sé að frétta. Kannski væri best að sleppa því, ég veit það ekki? Maður er ekkert búinn að vera allt of hress upp á síðkastið og það sem meira er, þá eru margir af mínum bestu vinum eitthvað hálf þungir og krumpaðir á sálinni. En maður gerir bara það besta í stöðunni og ræðir þetta og reynir að varpa ljósi á mismunandi vinkla. Kannski er bara þetta covid ástand loksins farið að hafa einhver áhrif á mann? Það er allavega ekki eins og það sé mjög uppbyggilegt að fylgjast með fréttum síðustu misserin.

Í gær kíkti ég á fótboltamót í Boganum. Brynleifur er að keppa alla helgina og það er mikið fjör. Í gær gerðu þeir eitt jafntefli og töpuðu einum en það kom ekki í veg fyrir að hann væri í skýjunum með þetta allt saman. Þjálfarinn hafði hrósað honum og sagt að hann yrði góður fyrirliði. Það gladdi okkur mjög.

Eftir svefnlausa nótt í upphafi vikunnar þá riðluðust æfingaplönin. Á miðvikudaginn þurfti ég að hætta eftir 17 mínútur og var alveg búinn á því. Ég tók því einn hvíldardag og kláraði svo æfinguna í gær, reyndar með erfiðismunum. Ég er búinn að vera á grænmetisfæði alla þessa viku og það hefur orðið til þess að ég er að éta miklu minna en venjulega. Kannski er það bara að koma í hausinn á mér. Ég held allavega að ég leyfi mér að éta eitthvað djúsi og feitt í dag til að hlaða á orkubankann.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap