How to workout smarter

Upphífingarátak í H3e

Stundum rekst maður á eitthvað á netinu sem breytir lífi manns. Í ljósi þess hvað ég er að fara að tala um núna, þá eru þetta kannski svolítið dramatísk orð. En þetta breytti samt lífi mínu. Ætli það séu ekki orðin 3 ár síðan ég rakst á myndbandið How to Workout Smarter sem tekið er úr Joe Rogan podcasti. Í kjölfarið breytti ég eiginlega alveg nálgun minni á æfingar og legg frekar áherslu á magn, minna effort og flæði. Þannig náði ég mér t.d. úr meiðslum þegar ég var að mæta í crossfit. Núna passa ég mig á því að fá aldrei strengi sem koma í veg fyrir að ég geti æft daginn eftir. 

Ég ætla ekki að eyða tíma í að fara nákvæmlega yfir hvað þeir kumpánar eru að spjalla um þarna en hvet áhugasama á að kíkja á þetta.

En út frá þessu fór ég að setja upp litlar æfingarútínur sem ég er duglegur að gera heima. Þær eru svo stuttar að það er engin afsökun að sleppa þeim. Og svo passa ég að þær séu líka skemmtilegar. Ég reyndar stilli þessu yfirleitt þannig upp að ég er að brasa eitthvað annað á meðan. Ég hendi mér í stuttbuxur, rúlla einn hring í gegnum upphífingar, armbeygjur og magaæfingar, geng svo aðeins frá í eldhúsinu, rúlla annan hring osfv.

Á 30 dögum er ég búinn að taka 540 upphífingar, sem gera 18 á dag að meðaltali. Ég sé mun á mér og að sjálfsögðu verður þetta auðveldara og auðveldara. Lykillinn er að bæta hægt og rólega við fjölda endurtekninga. Og eins og má sjá á myndinni, þá hafa börnin smitast af þessu og eru sjálf komin með bókhald yfir sínar æfingar. 

Í dag er hvíldardagur á hjólinu þar sem ég tók mjög krefjandi æfingu í gær en ég tek æfingahringinn minn seinnipartinn áður en við förum í sund. Á morgun (laugardag) verður 2 klst. róleg æfing og ég ætla að reyna að horfa á eitthvað skemmtilegt á meðan.

Annars erum við bara að detta inn í helgina. Það er starfsdagur í skólanum í dag og ég því heima með börnin. Eftir vinnu þarf ég að hjóla niður í Innbæ að sækja nótnablöðin hans Brynleifs og ætla að koma við í Pedró og kaupa einn ramma. Þarf að skila af mér einni mynd í næstu viku sem sýnishorni. Er kominn með 2 sem koma til greina en ætla að halda áfram að paufast eitthvað um helgina. 



Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap