Haust

Langt síðan ég hef birt eftir mig mynd. Þessi er kannski tilbúin.

Það er búið að vera ansi haustlegt síðustu daga. Laufin héngu ótrúlega lengi á trjánum en gáfust svo upp á endanum og féllu til jarðar. Núna er eins og Efri Brekkan hafi verið lögð gulu teppi. Ég hef aldrei verið haustmaður, en það er samt einhver sjarmi yfir þessu. 

Ég var búinn að ákveða að vinna í Víkingalottó á miðvikudaginn en það mistókst. Ég vinn bara á laugardaginn í staðinn. Þó mér líði afskaplega vel hérna í Hjallalundinum þá sárvantar mig bílskúr fyrir hjólin mín svo ég geti hugsað betur um þau. Ég sé því fyrir mér að kaupa litla raðhúsíbúð með bílskúr.

Ég fór því að undirbúa mig (ég veit að ég mun vinna og ég á það skilið) og kíkti á www.fasteignir.is til að sjá hvað er í boði. Niðurstaðan úr því er sú að það er eiginlega ekkert húsnæði í boði á Akureyri og það sem er í boði er geðsjúklega dýrt. Raðhús með bílskúr, svipað á stærð og Dalsgerðið kostar 60-70 milljónir. Til samanburðar keyptum við Dalsgerðið 2016 á 33 milljónir. Ég er ekkert hættur við að vinna í Lottó á laugardaginn en 35 milljónir duga skammt. 

Við börnin erum að leggja af stað með flugi til Reykjavíkur eldsnemma í fyrramálið og þau væntanlega að farast úr spenningi. Ekki mikið planað á morgun en á laugardaginn förum við í Rush og út að borða. Leikhús á sunnudaginn og KFC. Það eina sem ég ætla að gera er að fara í Kringluna og kaupa sokka með myndum af hjólum. Ég nenni ekki að útskýra það frekar. Man ekki hvað hún heitir. Svo kíkir maður kannski aðeins í dótabúð (Kría hjól eða Hjólasprett).

Þar sem ég verð 3 daga í burtu þá færði ég æfingu yfir á daginn í dag. Ég er búinn að hjóla rúmlega 100 km í þessari viku og á frekar háu tempói. En nú koma 3 dagar í hvíld og ég ætla að njóta þeirra í botn og éta á mig gat.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap