Hollusta
Eftir innkaupaleiðangur sem var af dýrari gerðinni (í mörgum skilningi). |
Í gær var föstudagskaffi í vinnunni og ýmsilegt ljúffengt á boðstólnum; súrdeigsbrauð, hjónabandssæla og vínarbrauð. En hvers vegna er ég að segja frá þessu? Jú vegna þess að ég mætti í kaffið, fékk mér eitt af öllu og hafði bara ekki nokkurt einasta samviskubit yfir því. Það er af sem áður var.
Samband mitt við mat litaðist lengi vel bara af boðum og bönnum, sem endaði gjarnan með ofáti og vanlíðan í kjölfarið. Rosalegar sveiflur, keto, lágkolvetna, djúskúrar og fæðubótarefni… ég er búinn að prufa þetta allt. Og ég hef meira að segja verið á þeim stað í lífinu að fussa og sveia yfir næringafræðingum sem töluðu um að lykillinn væri hófsemi og fjölbreytt mataræði. Ég leit á sykur sem eitur og hveiti og hrísgrjón sem úrgang andskotans. Þetta var ekki nógu extreme fyrir öfgamanninn mig. Ég vildi skyndilausnir, boð og bönn.
En núna hef ég farið í gegnum hægfara jákvæða þróun sem byggir annarsvegar á hófsemi og hinsvegar á því að hugsa vel út í hvað líkaminn minn þarf til að standa undir þeim æfingum sem ég er að stunda. Mig langar að taka nokkur dæmi:
Þegar ég dett í sukkgírinn (sem er í góðu lagi) þá passa ég mig alltaf á því að borða allavega eina góða máltíð yfir daginn og það sama gildir fyrir börnin mín. Ef það er grjónagrautur hjá þeim í matinn þá borða þau líka harðfisk eða smá egg og oftast gúrku eða annað grænfóður. Venjuleg máltíð samanstendur alltaf bæði af próteinum og kolvetnum. Dagsdaglega borða ég mikið af trefjum og hollum fitum. Ég borða orðið lítið af rauðu kjöti, en vil samt ekki sleppa því alveg og ég borða meira af fiski en ég gerði áður. Ég borða meira þegar ég er að æfa mikið. Ég borða vel 2-3 tímum fyrir æfingu, ég borða á meðan ég er að hjóla og ég fæ mér alltaf prótein og kolvetni beint eftir æfingu. Að lokum, þó ég borði öllu jafna ekki neitt eftir kvöldmat, þá geri ég stundum undantekningar ef ég hef verið að taka mjög mikið á því. Þá fæ ég mér stundum eitthvað hollt áður en ég leggst í bælið.
Og það besta við þetta allt er að geta líka leyft sér að éta nammi um helgar, fá sér vöfflur eða borða hammara við og við. Það er bara orðið mikið sjaldgæfara og ég fæ ekki samviskubit. Þetta hefur s.s. leitt til þess að ég er að ná einhverskonar jafnvægi og þetta er ekkert mál. Ég elska þetta!
Ég ætla að enda þetta á að tala aðeins um morgunmat. Ég tók langan kafla þar sem ég sleppti morgunmat og fannst það alveg ágætt. En með allar þessar æfingar í gangi þá bara meikaði það ekki sens. Í síðustu vikur dró ég svo fram mixerinn og fór að gera smoothie sem ég bætti inn í morgunmatinn. Þetta er það sem ég hef verið að setja í hann:
- Frosinn banani
- Frosin gúrka
- Spínat
- Möndlumjólk
- Hampfræ
- Smá próteinduft
- Eitthvað til að bragðbæta (frosin ber eða engifer t.d.)
Ummæli