Útilega og gran fondo de la Grenivík
Brynleifur og Jökla á leið í útilegu |
Frábær helgi að baki. Ég Davíð og Hanna Kata skelltum okkur með börnin á Hamra og nutum veðurblíðunar. Við börnin vorum eiginlega bara farþegar og keyptum ekki einu sinni neitt að borða, fengum lánað hjá þeim tjald og notuðum sólarvörnina þeirra🙈 Það vantaði bara að við hefðum burstað í okkur tennurnar með tannburstunum þeirra. Þau eiga inni hjá okkur einhvern stóran greiða.
En margt var brallað og mikið hjólað. Eldri krakkarnir voru mikið að sulla í tjörnunum og þær yngri að brasa við að fylla vatnsglös og hella ofan í skurð. Pylsur grillaðar, allt eftir bókinni. Á sunnudeginum komu svo Halldóra og Helga Guðrún á hjólum og svo hjólaði öll strollan í bæinn. Frábær helgi, alveg frábær. Og kannski til vitnis um hvað var gaman, þá náði ég ekki að vekja Dagbjörtu Lóu í morgun. Það blakti ekki á henni og ég lokaði bara hurðinni aftur og gaf henni rúmlega klukkutíma í viðbót.
Eftir vinnu í dag tók ég fyrsta 100 km túr sumarsins. Hjólaði út á Grenivík og til baka, upp í gegnum hverfið í Vaðlaheiðinni og svo fram í Kristnes. Brekkusprettir virðast vera að skila sér því ég var mjög sterkur í lokin. Hélt aftur af mér stóran hluta af leiðinni en þegar stutt var eftir fór ég að halda uppi góðum hraða á móti hafgolunni. Endaði á að hjóla upp í gegnum Kjarnaskóg og slátraði brekkunum þar. Mjög ánægður með þetta. Meðalhraði var rúmlega 27 km/klst og púls 132 að meðaltali. Það er bara fínt miðað við að þetta átti að vera rólegt.
Þegar ég kom heim fékk ég mér salat með ansjósum, fetaosti og eggjum, ristað brauð og einn Bríó. Nú er ég kominn í bælið og líður alveg prýðilega. Sjáum hvað líkaminn segir á morgun.
Ummæli