Slydda og kuldi
Feðgar slappa af, borða kvöldmat og horfa á Dr. Phil |
Nú styttist í sumarfríið og ég þarf að fara að dusta rykið af pælingum með hjólaferðina. Ég á ennþá eftir að kaupa mér tjald, regnbuxur, svefnpoka og langerma merino treyju. Til að redda þessu fjárhagslega verð ég að henda einhverju dóti á sölu og er þar efst á lista; hreindýrariffillinn minn, Brooks hjólatöskur, einn hjálmur, hátalarar og magnari. Ég reikna með að panta tjaldið í Svíþjóð og láta senda það til pabba, en hann og Hafrún koma í byrjun júlí. Ég þarf því að fá lánað tjald ef ég ætla að fara í einhvern upphitunartúr.
Börnin eru búin að vera hjá mér þessa viku og það er eiginlega búið að vera brjálað að gera. Brynleifur er búinn í skólanum og það er því aukaálag að passa að hann mæti á æfingar, passa að hann borði og ég fór líka með honum á golfæfingu (hann er orðinn golfsjúkur). Svo er ég að leggja af stað í 2 daga vinnuferð í fyrramálið og þarf að ná að púsla öllu saman. Helga Guðrún kemur hingað í kvöld til að koma þeim af stað í fyrramálið því ég þarf að leggja af stað klukkan 06:00. Ofan á þetta þurfti ég að fara með hjólið mitt í viðgerð, reyna að púsla inn æfingum og halda uppi skemmtiatriðum fyrir krakkana.
......
jæja það eru víst nokkrir dagar síðan ég byrjaði á þessari blessuðu færslu. Síðan er ég búinn að fara í 2 daga vinnuferð í Suðursveit og hreinlega búið að vera brjálað að gera. Kom heim klukkan 22 í gærkvöldi, vann óþarflega lengi í dag og fór svo út að hjóla í kuldanum. Á morgun er víst þjóðhátíðardagur og útskrift hjá Brynjari. Svo er ég að skella mér suður í 3 daga. Ég læt þetta nægja í bili.
Ummæli