hjól hjól hjól hjól

Hér fjallar allt um hjól núna... þannig er það nú bara. Ég fór út að hjóla í gær og eftir góða byrjun var ég sviptur öllum dýrðarljóma. Á ensku kallast það "to bonk" eða "to hit the wall". Ég lendi frekar í þessu á hjóli en þegar ég var að hlaupa. Ástæðan er í raun bara þegar glycogen birgðirnar í vöðvunum klárast og maður á enga orku. Ég var ca. hálfnaður þegar þetta gerðist og ég bara lullaði heim og var á köflum með svima og litla athygli. Var ekki með kort til að kaupa mér neitt og engan orkudrykk. Þegar ég kom heim át ég orkustykki, snakk, wheetabix með súkkulaði og svo stóra kvöldmáltíð. Kannski ekki það hollasta en líkaminn öskraði á þetta. Ég fór svo snemma í bælið og náði góðum svefni.

Í dag ætlaði ég að taka 70 km rólega en endaði með því að taka 50 km með 500 metra hækkun og effortið var töluvert á köflum. En ég var löngum stundum að halda 28 km/hraða á móti norðan golunni og mér leið vel. Það er hrikalega gaman þegar maður finnur sig styrkjast og fer að geta sett meira power í pedalana í lengri tíma. En ég er í smá vandræðum með skiptinguna á hjólinu og þarf að fá aðstoð. Ég bara næ ekki að stilla gírana nógu vel.

Um helgina verða ekki miklar hjólreiðar. Ég ætla að hvíla mig en ég ætla samt að hjóla 20 km á ferðahjólinu í hádeginu og ná mér í mat. Næsta vika verður róleg í hjólreiðunum enda börnin hjá mér. Ætli það verði ekki aðalega ferðir upp í skíðahótel.

Að lokum; í dag er alþjóðlegur dagur hjólsins... til hamingju með það!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap