Aftur að ferðaskipulagi
Viðraði Pugginn fyrir fjallaferðina þegar við fórum í útilegu. |
Ég get alveg viðurkennt að ég var eiginlega kominn með í magann út af fjallaferðinni minni í lok næsta mánaðar. Ég var hársbreidd frá því að panta mér þetta svíndýra Hilleberg tjald sem ég hef þusað um hérna margoft. Á endanum bað ég pabba að sleppa því að kaupa það og ákvað að reyna að redda mér gömlu notuðu tjaldi- sem var reyndar ekkert voðalega spennandi tilhugsun. En eftir að hafa legið yfir þessu ákvað ég að splæsa bara í gistingu í skálum og mér sýnist á öllu að ég fái allstaðar inn, enda verð ég á frekar fáförnum slóðum, svona allavega að hluta til. Og á tveimur stöðum þarf ég vonandi ekki að borga. Ég reyni svo að fá litla tjaldið hans Þórðar sem backup ef ég villist eða þarf að halda kyrru fyrir vegna veðurs. Mér líður ótrúlega vel að hafa tekið þessa ákvörðun og nú hef ég aðeins meira svigrúm til að kaupa annað sem vantar.
Ég er búinn að uppfæra ferðaplanið sem ég birti hérna bæta Vikrafellsleið inn og sleppi því Dyngjufjalladalnum. Ég held að þetta eigi allt eftir að ganga eins og í sögu en get þó alveg viðurkennt að ég er svolítið stressaður með að vera að fara yfir ár þegar ég er einn á ferð, t.d. við Tungnafellsjökul. En maður fer bara varlega og reynir að fara yfir þær á réttum tíma dags. En svona lítur planið út núna:
Næstu skref í þessu hjá mér er að plotta leiðina upp í GPS og læra á tækið (fæ það lánað hjá Þórði). Síðan þarf ég að fara að taka saman dótið og gera áætlun með matinn. Verst að ég fattaði ekki að biðja pabba að kaupa þurrmat í Svíþjóð, hann er helmingi ódýrari þar.
Í gær tók ég ekki hjólaæfingu enda var ég að hvíla eftir gran fondo. En ég þurfti samt að þvælast aðeins innanbæjar og endaði á að fara einhverja 10 km. Í kvöld hjólaði ég út í Hrafnagil og svo hring í bænum, 40 km. Það var erfitt að berjast á móti vindinum út í Hrafnagil en á leiðinni til baka hélt ég rúmlega 50 km/klst meðalhraða og var rúmar 10 mínútur að flugvellinum. Það tók alveg í en ég var eiginlega orðinn uppiskroppa með gíra og var orðinn eins og hamstur á amfetamíni. Samt geggjað.
Ummæli