Afmæli hjá Degi
Falleg skepna. |
Eftir vinnu í dag skrapp ég með börnin í barnaafmæli í Vallholt. Dagur æskuvinur Brynleifs átti afmæli og mér finnst mikilvægt að þeir haldi tengslum þar sem langt er á milli. Það er einhver þráður á milli þeirra og þeir ná svo vel saman. Það sást í afmælinu, því Dagur vildi helst vera í kringum Brynleif, og öfugt.
Það er alltaf líf og fjör í kringum Bergþóru og Sæma og afslappað að koma til þeirra. Krakkarnir fengu að klappa hundunum, keyra um á hundakerru, spranga í Bragganum og éta hvönn ofan í skurði. Síðan voru grillaðar pylsur og sykurpúðar. Og þarna hittumst við gamla gengið úr Mývatnsveitinni, ég, Hanna Kata og Davíð, Sæmi og Bergþóra. Arnar hennar Soffíu kíkti við, Dóri Ingvars og Gunnar Ingi rafvirki. Og svo voru Snjóka og Kiddi þarna. Þetta var alveg dásamlegt.
Eftir kærkomna hvíld á mánudaginn skellti ég mér út að hjóla í gær. Hafði ekki mikinn tíma þannig ég hamaðist í brekkum. Fór langleiðina upp í skíðahótel en snéri við þar sem það var svo hvasst þarna uppi. Hjólaði aftur niður, aðeins upp aftur og fór svo brekkuna við malbikunarstöðina. Þaðan fór ég alveg niður að Glerá og hjólaði svo heim. Moving time voru 50 mínútur og hækkun um 400 metrar.
Þar sem krakkarnir eru hjá mér verður æfing morgundagsins væntanlega svipuð þessari- eitthvað stutt. Það spáir hrikalega vel fyrir helgina og ég er að spá í að taka heilan dag með krökkunum í Kjarnaskógi og leyfa þeim að sulla í leiktækjunum sem eru í tjörnunum við Hamra. Hjóla svo í bæinn og borða eitthvað gott. Síðan ætla ég að reyna að fá pössun í einhverja 4 tíma og reyna að ná +100 km rúnti.
Lífið er gott.
Ummæli