Verkefni

Vinnuborðið komið í notkun aftur.

Ég tók að mér að mála mynd fyrir sérstakt tilefni í lok síðustu viku. Ég var frekar rólegur yfir þessu því ég hélt að ég hefði 2 mánuði til að klára þetta og koma þessu í ramma. Í gær hringdi svo sá sem pantaði verkið og spurði hvernig gengi? Ég sagði honum að ég væri alveg slakur og ekkert farinn að tékka á þessu. Þá kemur í ljós að ég hafði 2 daga en ekki 2 mánuði. Þetta var ekkert rosalega notaleg tilfinning.

En ég settist s.s. niður í gærkvöldi og byrjaði eitthvað að sulla og gekk reyndar ekkert allt of vel. Ég segi ekki að ég hafi verið farinn að panikka, en mér allavega líst ekkert sérstaklega á blikuna. En ég get huggað mig við að ég hefði aldrei tekið þetta að mér hefði ég vitað að fyrirvarinn væri svona stuttur. En ég hef kvöldið í kvöld og næ kannski að teygja þetta fram á föstudagskvöldið.

Annars er ég búinn að kaupa fyrsta skammtinn af því sem mig vantar fyrir hjólaferðina. Það borgar sig að panta ekki fyrir meira en 40 þúsund í einu svo maður þurfi ekki að borga fyrir tollskýrslu. En ég pantaði tösku í stellið (frame bag), bremsupúða, brúsafestingar á gaffalinn og undir stellið og 2 x 1,5 L flöskur. Síðan reyndar fann ég fína SPD pedala á racerinn í Útisport. Ég kippti þeim upp á leiðinni í Hagkaup þar sem ég keypti Macrame spotta til að flétta blómahengi. Hljómar eins og lygasaga en er satt. Birti hér myndir þegar hengið verður tilbúið.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap