Skattur gefur pening- af sparnaði ofl
Þetta er eitthvað sem maður gæti séð á hjólaferðalagi um Mongólíu. Mynd: www.bikepacking.com |
Vinkona mín sem hefur ferðast um allan heim var að segja mér frá Mongólíu um daginn. Hún sagðist aldrei hafa heimsótt land sem hafði jafn mikil áhrif á hana. Ástæðan; hún hafði ekki hugmynd um hvað það var? Bara einhverjir töfrar. Ég hef stundum skoðað myndir og greinar frá hjólaferðalögum um Mongólíu en það hefur s.s. ekki verið ofarlega á listanum að fara þangað. Þetta ýtti aðeins við mér og landið færst ofar á lista.
Landið er eitt strjálbýlasta land í heimi, sólin skín minnst 250 daga á ári, þar er sjaldnast of heitt, fólkið er vinalegt, áhugaverð menning og náttúran ótrúlega falleg. Endalausar grasi vaxnar steppur og fjöll svo langt sem augað eigir. Hirðingjar á hverju strái með kindur, kýr og/eða hesta, svo ekki sé minnst á mongólska kameldýrið.
Manni hættir til að setja markið lágt þegar kemur að því að velja sér staði fyrir hjólaferðlög, en til hvers að eyða öllu púðrinu í Evrópu þegar allur heimurinn er undir? Sennilega er það einhver hræðsla að hluta til. Það er búið að innræta manni frá blautu barnsbeini að heimurinn sé svo skelfilega miskunarlaus og grimmur. Glæpamenn, tígrísdýr, snákar og sjúkdómar muni draga þig til dauða um leið og þú kemur út af flugstöðinni.
Peningalega séð er þessi marsmánuður frekar þungur hjá mér. Ég er í hörðum sparnaðaraðgerðum til að ná að rétt mig af eftir jólavísa. Ég þarf að fresta því að uppfæra ferðahjólið mitt og leggja áherslu á að græja mig fyrir hálendisferð sumarsins. Ég var að tala við Þolla í morgun og við erum að skoða tjöld. Sennilega ekki rétti staðurinn til að spara pening.
Hilleberg Akto 1. Mynd: adventurenordique.com |
Það er eiginlega vonlaust að finna tjald sem passar í allt sem maður ætlar að gera. Hilleberg Akto 1 er t.d. of lítið fyrir mig og börnin og svo er líka hægt að komast af með eitthvað ódýrara í góðum veðrum. En ef maður lætur verða af því að fara í hjólaferðalög árlega í allskyns veðrum og aðstæðum, þá held ég að ég gæti ekki gert mikið gáfulegri kaup.
Ummæli