Ný vika, nýtt upphaf, kannski nýtt tjald
Við fórum í smá road trip með Þórði um helgina. |
Nú er ný vika byrjuð og börnin að fara til mömmu sinnar. Ég kvíði því alls ekki, en ég veit samt alveg að það verður svolítið tómlegt í kofanum í kvöld. Það er því fínt að maður hefur nóg fyrir stafni þessa vikuna. Ég þarf að klára að þrífa íbúðina (náði ekki að klára helgarþrifin í gær), ég þarf að laga til í geymslunni og koma þangað dóti sem ég ætla að taka niður af veggjum. Á morgun er ég að spá í að biðja Þórð að fara með mér eina ferð á gámasvæðið og í endurvinnsluna. Síðan þarf ég líka að fara í smá viðhald á hjólunum, herða bremsur, festa eitt afturljós og eitthvað smotterí. Maður þarf því ekki að láta sér leiðast.
Síðustu 7 daga hef ég tekið heimaæfingar og fór ekki í ræktinni. Ég má ekki taka Dagbjörtu með mér og mér finnst fínt að brjóta þetta upp og gera bara rútínuna mína heima. Í gær skellti ég mér svo út að hlaupa. Ég hljóp rétt tæpa 4 km á pace 5:36 og er bara fínn í löppunum í dag. Ég er bara sáttur við það því ég held að ég hefi ekki hlaupið í heilt ár. Í dag og á morgun ætla ég svo að skella mér í ræktina, tek mér síðan pásu á miðvikudaginn og svo verða útitímar á fimmtudag og föstudag þar sem ræktin verður tekin undir einhvern skólahóp.
Ég er kominn á fullt aftur í undirbúning fyrir hjólaferðina. Ég er að panta töskur og ætla að redda mér tjaldi fljótlega. Ég er meira að segja að bíða eftir símtali frá Everest í þessum töluðu orðum. Ég ætla að vera tilbúinn í fyrstu ævintýraferðina á Puggnum í maí/júní. Ég var búinn að vera að klóra mér í skallanum hver ég gæti eiginlega farið hérna í nágrenninu og svo fattaði ég allt í einu að maður gæti skellt sér á Flateyjardal. Það er reyndar alveg 40 km kippur bara í Dalsmynni, en með hækkandi sól ætti maður alveg að ná að fara þetta á 2 dögum. Djöfull verður það gaman.
Ummæli