Allt eins og blómstrið eina
Einhverjar skissur |
Lífið er gott núna og ég ætla að leyfa mér að vera jákvæður og þakklátur. Kallið það bara væmni, eða eitthvað, who cares. En hvað er svona frábært þessa dagana.
Ég fékk fyrirspurnir um einhverjar myndir frá konu í USA sem hafði séð póstkortin mín í Dyngjunni. Ég fór svo að grúska hvað ég ætti til og senda henni eitthvað til baka. Þetta hleypti smá lífi í mann og áhuginn er eitthvað að koma aftur.
Síðan var haft samband við mig og ég beðinn að gera eina mynd í jólagjöf. Ég hef þúsund sinnum lofað sjálfum mér að hætta þessu, en gat að sjálfsögðu ekki sagt nei. Og nú á ég fyrir höndum einhver kvöld sveittur og blótandi við vinnuborðið. En tíminn flýgur á meðan.
Ég er búinn að vera í jólastússi með börnin. Við erum búin að skreyta piparkökur og erum að leggja drög að ýmsu skemmtilegu. Nú styttist óðum í Stekkjastaur, gleðin er ósvikin og spurningarnar margar. Verið að föndra og skrifa miða til jólasveinana. Nú lifir maður jólin í gegnum börnin og nýtur þess í botn.
Nýja hjólið mitt er alveg geðveikt og ég hjóla bæinn þveran og endilangann með bros á vör eins og púki. Nagladekkin sem ég keypti, og voru svíndýr, eru hverrar krónu virði. Í dag skrapp ég t.d. niður í bæ til að sækja nýja stýristösku á gripinn sem var að berast með blessuðum póstinum. Þegar það var búið át ég eina pylsu og svo hjólaði ég beint upp Skátagilið án vandræða. Maður spólaði ekki einu sinni. Ég ætla að selja nagladekkin undan ferðahjólinu því þetta er bara tvennt ólíkt. Það er alveg hægt að hjóla á Akureyri allt árið um kring ef maður bara græjar sig upp.
Ég er duglegur að æfa heima, tek eina æfingu á dag. Þessi æfingahringur tekur 15- 20 mínútur og ég svíkst aldrei undan. Þetta ásamt hjólreiðunum heldur mér í fínu formi og ég sé hægfara jákvæðar breytingar. Mér er reyndar farið að hlakka mikið til að komast í ræktina en kvarta ekki.
Peningamálin hafa aldrei verið betri. Ég safna ekki upp neinum sjóðum en ég næ að borga reikninga um hver mánaðarmót og þarf ekki að hafa áhyggjur á meðan ég held vinnunni. Þetta hefur svo ótrúlega jákvæð áhrif á andlega heilsu að ég hefði ekki trúað því. Nú er bara að vinna smá í Lóttó og þá er málið dautt.
Að lokum, á meðan maður á heilbrigð börn, hefður þak yfir höfuðið og á fyrir salti í grautinn, þá bara verður maður að vera þakklátur. Þetta er það sem lífið snýst um og ef maður lærir ekki að njóta hversdagsins, þá bara getur maður kastað inn handklæðinu.
Og alveg alveg alveg að lokum, þá er ég búinn að standa upp á endann í eldhúsinu frá klukkan fimm í dag að undirbúa smá matarboð og hitting á morgun. Þórður, Irja (hundurinn) Slim (franski hárgreiðslumaðurinn) og Irija (króatíska vinkonan) ætla að koma í mat annað kvöld. Slim ætlar að klippa börnin og svo ætlum við að borða góðan mat og kannski kveikja á jólamynd. Í matinn verður kaldur hamborgarahryggur, heimagert kartfölusalat, rækjuréttur sem verður borinn fram með ristuðu brauði og kaldri sósu, laufabrauð, piparkökur sem við skreytturm í kvöld, jólaöl og ísblóm með Daim.
Lífið er yndislegt.
Ummæli