Fréttir úr héraði

 Allt gott að frétta af okkur og þessi vika hefur verið mjög fín. Börnin eru hress og kát, það gengur fínt hjá mér í vinnunni, tennurnar í mér alveg geggjað góðar, allt fullt af góðum mat, hlýtt inni, kalt úti og allir frískir þrátt fyrir að muna sjaldan eftir að taka lýsi. Dagbjört sagði við mig í morgun "Pabbi veistu, að ef maður segir kennurunum að maður hafi tekið lýsi heima, þá þarf maður ekki að taka lýsi í leikskólanum." Hún er skörp :)

Sköpunargleðin hefur ekki ennþá knúið dyra en ég get ekki verið að hafa áhyggjur af því. Það þýðir ekkert. Í staðinn er ég búinn að vera að nördast í geðsjúkdómum; er að lesa bókina hans Óttars Guðmundssonar Hetjur og hugarvíl um geðsjúkdóma í Íslendingasögunum. Og svo er ég aðeins búinn að vera að horfa á myndbönd af geðlæknum að taka viðtöl við fólk með með mismunandi útgáfur af schizophrenia. Afar áhugavert.

Svo á maður víst afmæli um helgina. Ég ætlaði nú ekki að gera neitt en börnin krefjast þess að keyptar verði blöðrur og krásir lagðar á borð. Grænar blöðrur í mitt herbergi, appelsínugular hjá Dagbjörtu Lóu og bláar hjá Brynleifi. Blandaðir litir í önnur rými. Lóa sér um litaþema en Brynleifur hefur meiri áhyggjur af matseðlinum. Þau vilja hafa súkkulaðiköku en ég vildi hafa karmellutertu. En börnin fá að ráða enda þau mikið mun spenntari fyrir þessu.

Ég er byrjaður að gera heimaæfingarnar aftur eftir að tannverkirnir hurfu. Smá armbeygjur, magi, bísepp og axlir. Ég læt það nægja. Puggurinn er kominn á nagla og ég er búinn að skottast eitthvað um á honum og er ánægður. Fyrsta morguninn sem var snjór var allt ómokað og þá fannst mér ég stundum fljóta meira en ég bjóst við, án þess þó að lenda í vandræðum. Síðan þá er búið að moka stíga sumstaðar og annarstaðar hefur snjórinn troðist niður og ég flýg yfir þetta allt saman. Sumstaðar hefði ég verið í stórhættu á ferðahjólinu, en á þessu lek ég yfir eins og nýsmurður ugluskítur.

Kvitt..

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap