Ekki fyrir viðkvæma
Ef þú ert ekki mikið fyrir lýsingar á tannviðgerðum og greftri, þá skaltu bara hætta núna.
Ég er búinn að fara til tannlæknis bæði í dag og í gær. Í gær var fylling rifin úr jaxli og byrjað að hreinsa úr rótargöngum. Við þetta minnkuðu verkirnir mikið en ég er samt ennþá bólginn á hægri kjálka. Það sést bara með því að horfa í spegil.
Tannlæknirinn kallaði mig svo aftur inn í morgun og vildi hreinsa betur upp úr þessu og reyna að bakteríudrepa og klára áfanga 2 (það er eins og maður sé að tala um virkjunarframkvæmdir). Hún deyfði mig ekki heldur lét nægja að sprauta deyfiefni ofan í rótargöngin og byrjaði svo að mæla dýptina og raspa með þjölum. Í eitt skiptið fann ég að hún kom að einhverri hindrun en svo kom smellur, mikill sársauki í smá stund og svo sagði hún að það hefði byrjað að flæða gröftur upp. Yummi!!
En þetta losaði enn frekar þrýsting á þessu og ég held svei mér að bólgan sé strax að minnka. Nú heldur maður bara áfram að éta sýklalyf og vona það besta. Þó mér líði betur ætla ég ekki að taka æfingu í dag- enda ennþá með hausverk og svolítið tuskulegur.
Annars er ekkert títt. Bara mikil hlýindi í veðrinu og hávaðarok.
Að lokum, ég var mjög ánægður að tannæknirinn minn notað svo Fuji 9 til að fylla í tönnina. Þeir sem ekki vita hvað það er skuluð fara á YouTube og skrifa "Bob Mortimer dentist".
Ummæli