16.10.2020

Þórður í skjóli bakvið rúllu

Það hefur s.s. ýmislegt á daga manns drifið upp á síðkastið en það er s.s. ekkert voðalega áhugavert að grein frá því. Búinn að fara til háls nef og eyrnalæknis, éta helling af sýklalyfjum og verkjalyfjum og svo er ég búinn að fara 2var til tannlæknis. Og sem betur fer held ég að þetta sé loksins að skána. Ég var orðinn frekar þreyttur á þessu. En miðað við ástandið í þjóðfélaginu og þessi "veikindi" hefur maður s.s. bara verið nokkuð brattur og jákvæður.

Ég og Þórður skelltum okkur í gæs á laugardaginn fyrir viku og loksins gekk okkur vel. Við komum okkur fyrir í túni Skúta í Heiðarsporðarásnum. Þar höfðu verið gæsir á stangli dagana á undan og ekki aðrir betri staðir í boði. Við komum okkur fyrir austan í túninu og sátum á milli tveggja rúlla sem höfðu verið skildar þar eftir og stilltum upp 6 Avian X gervigæsum 30 metra inn á túninu, upp á smá hæð. Fljótlega fóru gæsirnar að koma inn og viti menn, þær komu allar beint inn í gervigæsirnar og reyndu að setjast. Við stóðum okkur vel og skutum 13 gæsir. Okkur reiknaðist til að við höfum ekki misst nema kannski 5 frá okkur. Aðstæður til gæsaveiða voru í raun ekki eftir bókinni, blanka logn, heiðskýrt og sól. Það var kalt og óhemju fallegt um að litast.

Við gerðum að þessum gæsum á miðvikudaginn og nú eru þær í kryddum í ískápnum að "grafast". Á sunnudaginn ætlum við svo að reykja þær í ofni sem Þórður er að smíða. Það verður gaman að prufa það. 

Maður er nú ekki að gera neinar rósir í æfingum. Samgönguhjólreiðar og svo hef ég reynt að standa mig í að gera smá æfingar með ketilbjöllu hérna í stofunni. Er að spá í að hjóla upp í skíðahótel á morgun. Hef verið slakur í matnum og búinn að éta allt of mikið af rusli. Nú er bara að snúa blaðinu við í því.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap