Matarkarfan hækkað um 6,3% frá áramótum
Ég rakst á þessa fyrirsögn í gær en eins og venjulega hef ég ekki tekið eftir neinu þegar ég versla. Ég bara fer í búð og kaupi það sem mig vantar. En ég hef samt aðeins verið að reyna að spara meira upp á síðkastið og versla skynsamlega. Ég reyni að elda stóra skammta og hafa með mér í vinnuna. Þetta reyndar gengur betur þegar börnin eru ekki hjá mér því þau geta ekki étið allt sem ég vil borða. Þá er gott að grípa í súrmjólk, eggjahræru með osti og súrmjólkin klikkar ekki.
En það eru nokkur ráð sem maður getur farið eftir til að spara stórar fjárhæðir:
- Kaupa ekki sódavatn eða gosdrykki. Á tímabili átti ég alltaf sódavatn í dósum sem mér finnst alveg geggjað gott að grípa í en þetta telur fljótt.
- Elda mat þar sem maður þarf ekki sérstök krydd, sósukrukkur og annað sem skemmist svo í ískápnum. Ég bý t.d. til mitt taco krydd, það er mjög einfalt.
- Ég kaupi bara gúrkur og paprikur sem salat. Börnin borða þetta alltaf og salat er dýrt og skemmist hjá mér.
- Borða bara 3 máltíðir á dag og sleppa millimálum.
- Reyna að elda hafragraut frekar en að borða alltaf morgunkorn.
- Kaupa frekar súrmjólk en jógúrt eða AB-mjólk í dósum.
Annað sem ég er farinn að gera er að ef það er pizzakvöld, þá kaupi ég Dr. Ötke pissur og bæti á þær áleggi. Elda þær á háum hita eða pizzasteini á útigrilli og finnst þær betra en 3000 króna pizzur á pizzastöðum. Spara 2400 kr. per pizzu. Þó það tengist ekki beint matarkörfunni þá er ég að reyna að sleppa því alveg að éta í mötuneytinu í vinnunni eða éta Zerrano eða kebab.
Að lokum, þá reyni ég oft að sleppa því að fara í búðina og reyni þá bara að éta það sem er til í ískápnum. Ef ég á egg þá er ég góður. Rista eina brauðsneið, spæli 3 egg og ét svo bara eitthvað drasl með þessu sem er til.
Ég tók einu sinni saman hvað ég var búinn að eyða í mat á einum mánuði og það fór upp í 120.000 krónur sem er alveg óþarflega mikið. Það virðist nú ekki vera bjart framundan í efnahagslífinu þannig það er sennilega best að vera svolítið harður við sig.
Annars gengur bara allt þokkalega. Barnlaus vika; ræktin, matur og æfingar. Stefni á gæsaveiðar um helgina með Þórði. Vorum að gera að gæsum áðan og gerðum 5 kg. af pylsum. Sei sei
Ummæli