Fjármálaóreiða með smá stressi en kominn í var í bili...
Í gegnum árin hef ég yfirleitt rétt svo náð að skrimta milli mánaða. Þegar maður hefur verið búinn að borga alla reikninga hefur maður svo hangið á Visakortinu það sem eftir lifir mánaðar, þetta er alvanalegt. Síðustu mánuðir hafa hinsvegar verið ágætir og barnabæturnar hjálpa mikið (þó þær hafi lækkað frá því í fyrra hjá mér). En þessu áhyggjuleysi fylgdi líka aðeins meira kæruleysi og síðustu vikur slakaði ég aðeins of mikið á og missti yfirsýnina. Ég hef gert óþarflega vel við mig í mat (étið úti), dekrað við börnin og keypt mér föt (eitthvað sem ég ætlaði ekki að gera á næstunni). Svo lenti ég líka í smá útgjöldum sem voru ekki fyrirséð, krani á baðið og eitthvað sem ekki verður hjá komist.
Svo þegar þessi hjólapöntun datt í hús og ég kíkti inn á heimabankann til að líta á ógreidda reikninga, sá ég að það stemmdi í óefni. Ég var sem betur fer að fara að skuldbreyta hjá mér láni og fékk greiðslumat til að bæta aðeins við höfuðstólinn til að rétta mig af. Þetta er ekki fyrsta skipti sem ég lendi í þessu og með áhyggjuleysinu er maður ótrúlega fljótur að auka við eyðsluna. Oftast eru þetta bara litlir hlutir, en safnast þegar saman kemur. En ég hef s.s. enga afsökun fyrir þessu upphlaupi með hjólið. Ég hefði átt að hafa betri yfirsýn og sjálfsagt hefði verið gáfulegt að bíða með það.
En nú er þetta búið og gert og ég allavega rosalega spenntur að fá það í hendur fyrir veturinn. Það á eftir að auðvelda mér lífið í vetur. Ég verð með stýristösku á því og þar mun ég vera með batterí sem ég tengi við gott ljós og svo góð nagladekk. Ég verð með 2 vatnsheldar töskur aftan á því og það verður gaman að skottast í Bónus, fara á bókasafnið og í sund. Verst að Lóa er orðin svo stór að ég á eiginlega ekki séns á að koma henni aftan á með löglegu móti. Ég var að spá í að útbúa haldföng og setja gærustubb fyrir hana til að sitjá á, en það er víst ekki löglegt. Maður myndi ekki vilja hafa það á samviskunni ef eitthvað kæmi fyrir.
Hjólið fer sennilega af stað á morgun hingað norður og ég mun því taka prufurúnt í næstu viku. Annars er lífið bara gott. Börnin hafa það gott þrátt fyrir smá veikindi þessa vikuna og við ætlum öll að skella okkur í Mývatnssveitina um helgina. Förum í réttir og étum væntanlega eitthvað gott ef ég hef öðlast sæmilegan skilning á veröldinni eins og hún birtist mér.
Ummæli