Allt rólegt á norðurvígstöðvunum.
Fór með börnin í dag að kíkja á Hjallalundinn. Brynleifi fannst þetta nú svona frekar gamalt allt og hrörlegt, ekki alveg nægilega cool. Ég útskýrði fyrir honum að við ættum eftir að mála allt og setja okkar dót inn og þá myndi þetta verða betra. Hann vill mála herbergið sitt í sænsku fánalitunum en ég er nú ekki alveg viss um að ég muni gúddera það.
Ég er aðeins að bræða það með með mér hvort ég fái einhvern til að mála þetta með mér en ég tími því varla. Eftir því meira sem ég eyði í málningu, húsgögn og annað slíkt, því minna get ég lækkað greiðslubirgðina af gamla Sparisjóðsláninu sem ég verð að halda að stærstlum hluta. Ég verð að fara að gera fjárhagsáætlun þar sem ég tek inn í fansteignagjöld og allan pakkann. Reyna að átta mig á fjárhagslegu svigrúmi, hvernig lífi við getum leyft okkur að lifa. Ég er alveg viss um að það verður ágætt en ég væri samt alveg til í að vinna 8 millur í lottóinu.
Á morgun förum við austur í Mývatnssveit að sjá um búið. Mamma og Egill eru að fara á Sigló á eitthvað gönguskíðadæmi þannig að við börnin verðum bara ein í Brekku með hundunum. Það er nú ekki svo slæmt. Ég sé alveg fyrir mér að við gerum bara sem minnst. Veðurspáin er leiðinleg þannig maður dregur kannski bara uppfyrir haus.

Ummæli