sTuDiO

Hobby-do í Birkihrauni
Jæja ég skrifaði undir kaupsamning á Hjallalundinum á föstudaginn og þetta fer því að verða raunverulegt. Nú þarf ég bara að fara að finna einhver stað fyrir mig og börnin til að vera á frá 1. mars (fæ afhent 1. apríl).

Ég er farinn að gera lista yfir það sem ég þarf að gera áður en ég flyt inn. Þó maður hafi ætlað að halda framkvæmdum og fjárfestingu í lágmarki þá tínist alltaf eitt og annað til. Ég þarf t.d. að skipta um alla tengla, mála allt, kaupa skáp/hillur á baðið og það vantar náttborð fyrir börnin, svo eitthvað sé nefnt.

Svo er maður búinn að vera að teikna upp hvernig maður komi vinnustofunni fyrir. Ég er að spá í að stúka hluta af stofunni af með hillueiningu og koma mér þar fyrir. Það er s.s. ekki neitt stór mál ef maður ætlar að halda sig við beisík vatnslitun, en um leið og maður bætir olíu inn í þetta fer þetta að verða meira mál. T.d. ef maður vill geta stillt upp fyrir kyrrlífsmyndir. En það verður djöfull gaman að dunda við þetta.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap