|
Æfing með himinn- sem fór aðeins yfir strikið kannski. |
Ég er smám saman að detta í gamla gírinn hvað listsköpun varðar. Ég er farinn að setjast niður á kvöldin og prufa mig áfram- þó það sé bara eitthvað dútl aftan á gamlar myndir. Hægt og rólega þokast ég í rétta átt og finnst ég farinn að líkjast sjálfum mér aftur. Ég er farinn að skoða list aftur og ég sanka að mér efni sem mig langar til að mála. Ég gæti gengið svo langt að segja að ég sé farinn að sjá fegurðina í hversdagsleikanum aftur. Ég er að lifna við og djöfull er það gott.
Síðustu kvöld hef ég verið að æfa mig í að mála manneskjur, bara með pensli. Eitthvað sem kemur að góðum notum ef maður fer að mála einhverjar bæjarmyndir eða vill gæða myndir meira lífi. Síðan tók ég smá æfingu í gær með himinn og ský. Myndin hér að ofan er ein af tveimur sem ég gerði. Hún er svolítið to much.
Ummæli