Spennandi helgi framundan

Er að bíða eftir að Þórður komi og pikki mig og börnin upp. Ný Franchi Affinity komin ofaní tösku, haglaskot, flauta, gamli góði kaffibrúsinn... og allt það. Mývatnssveitin bíður. Best að taka með líka veiðistöng, svo maður geti leyft Brynleifi og Dagbjörtu að gera eitthvað skemmtilegt á morgun, spurning hvort við fáum ekki bara leyfi í Vogum og reynum að ná smá urriða.

Mamma er að fara suður um hádegi á morgun til að vera við jarðaför Bjössa frænda, þannig við drífum okkur bara aftur til Akureyrar seinnipartinn á morgun. Ætli það verði ekki bara frekar rólegt hjá manni það sem eftir lifir helgarinnar.

Næsta vika er barnlaus og það sem ég ætla að gera í næstu viku er:

  • Fara allavega 4x í crossfit
  • Hjóla allavega einu sinni
  • Lesa 2 bækur (Kalak og eina spennusögu)
Ég náði að fara 3var í crossfit í vikunni, alltaf í hádeginu. Í dag var frí í leikskólanum og þess vegna tók ég Dagbjörtu Lóu með mér. Axlirnar á mér eru frekar tæpar og ég er því að taka mikið tillit til þess þegar ég vel æfingarnar.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Útivera

Negri í Þistilfirði

Bikarmót #1 - 2023 - Recap